Vigdís uppljóstrar hver huldumaðurinn er Birgir Olgeirsson skrifar 22. júní 2015 21:23 Vigdís Hauksdóttir hjálpaði bandarískum kvikmyndagerðarmanni að finna hálfsystur hans á Íslandi Vísir
Vigdís Hauksdóttir kom bandarískum kvikmyndagerðarmanni í samband við hálfsystur sína á Íslandi. Um er að ræða átta ára ferli en hálfsystkinin hittust loksins hér á landi fyrr í mánuðinum og ætlar maðurinn að taka upp kvikmynd hér á landi á næsta ári. Margir hafa beðið spenntir eftir því að fá að vita hvaða mann Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hitti fyrir átta árum. Þingkonan birti stöðuuppfærslu fyrir átta dögum þar sem hún sagðist loksins hafa fengið að hitta mann sem hún hafði beðið eftir að hitta í átta ár. Urðu margir skiljanlega forvitnir en Vigdís var þögul sem gröfin, eina sem hún gaf upp var að örlagadísirnar hefðu spunnið þræði að sögu sem einhvern tímann verður skráð og sögð. Hún greindi síðan frá því fyrr í dag að maðurinn sem hún kynntist fyrir átta árum hefði óskað eftir hjálp Vigdísar í gegnum tölvupóst við að finna hálfsystur mannsins á Íslandi. Vigdís fór beint í málið og tæpum mánuði síðar hafði hún fundið konuna.Var nýkomin frá Winnipeg Á þeim tíma sem maðurinn hafði fyrst sambandi við Vigdís var hún nýkomin heim úr skiptinámi frá Winnipeg í Kanada. „Þar eru allir Íslendingar að leita að sínu skyldfólki sem fór vestur um þar síðustu aldamót þannig að ég var kannski svolítið upptekin af þeim hugsunarhætti þegar þessi beiðni berst,“ segir Vigdís í samtali við Vísi um málið. Hún segir leitina ekki hafa verið flókna. Maðurinn gaf henni upp ákveðið árabil þegar faðir hans var á varnarsvæði Atlantshafsbandalagsins við Keflavíkurflugvöll á Miðnesheiði. „Hann taldi að hálfsystir sín héti Vigdís eða eitthvað slíkt. Þannig að ég fór inn í þjóðskrá og fann allar þær konur sem höfðu fæðst á þessum árabili og höfðu annað hvort Vigdís sem eigiðnafn eða millinafn. Ég sendi þeim öllum bréf í pósti en fékk engin svör. Ég var greinilega ekki á réttri leið en fann þó konuna nokkrum dögum síðar eftir öðrum leiðum,“ segir Vigdís.Michael KehoeVísir/IMdB.comÁ ferð og flugi um heiminn Maðurinn komst í kjölfarið í samband við hálfsystur sína og skrifuðust þau á næstu átta árin eða þar til maðurinn kom til landsins fyrr í mánuðinum og hitti hana. Ástæðan fyrir því að hálfsystkinin höfðu ekki hist fyrr er meðal annars vegna þess að maðurinn, Michael Kehoe, hefur verið á ferð og flugi um heiminn við kvikmyndagerð. Samkvæmt kvikmyndavefnum IMdB.com hefur hann meðal annars sinnt veisluþjónustu(e. catering) um allan heim á tökustöðum stórra Hollywood-kvikmynda á borð við Batman v Superman: Dawn of Justice, sem er væntanleg árið 2016, Man of Steel, Star Trek Into Darkness og Mission: Impossible - Ghost Protocol en hann hefur verið í þeim bransa frá árinu 1992.Stöðuuppfærslan frá Vigdísi.Verðlaunaður fyrir stuttmynd Hann á einnig að baki nokkrar stuttmyndir sem hann leikstýrði en þeirra á meðal er stuttmyndin Hush sem kom út í fyrra og hefur verið verðlaunuð á hátíðum á borð við Los Angeles Art-House Film Festival, The Audience Awards: Bloody Shorts Film Festival, Intependent International Film Festival og ZedFest Film Festival. Vigdís segir hann ætla að koma til Íslands og taka upp kvikmynd næsta sumar sem á að gerast hér á landi. Mynd sem Vigdís deilir á Facebook í dag virðist veita einhverja innsýn í þetta kvikmyndaverkefni. Þar er Ísland sagt geyma mörg leyndarmál en árið 2016 verða þau uppljóstruð.
Mest lesið Halla slær á putta handboltahetjunnar Innlent Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Innlent „Ég á þetta og má þetta“ Innlent Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Innlent „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ Innlent Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Erlent Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Innlent Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands Erlent Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Innlent Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Innlent Fleiri fréttir Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Rannsóknaskipin gera hlé á loðnuleit vegna óveðurs Viðreisn býður fram undir merkjum Samfylkingar Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Ósammála um hvort lögregla hafi gefið fyrirmæli „Ég á þetta og má þetta“ „Það er ekki hægt að muna allan þennan djöful“ Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Hvalveiðimótmælin fyrir dóm og Danir segja ekkert samið um Grænland Húsleit fór fram víðar en á Akureyri Halla slær á putta handboltahetjunnar „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ „Sama hvað gerist þá sigra hvalirnir“ Ósammála um hvort Heiða sé „atvinnupólitíkus“ Kjósendur Flokks fólksins ekki fyrir framan tölvu alla daga Ölvaður og árásargjarn handtekinn í verslunarmiðstöð Sjá meira