Vilja brenna 2.000 tonn af dýrahræjum Sveinn Arnarson skrifar 13. júlí 2015 06:00 Ef brennsluofninn yrði nýttur að fullu verða til 65 tonn af ösku á hverju ári sem þarf að koma fyrir.
Kaupfélag Skagfirðinga hefur óskað eftir samþykki Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra til að setja upp brennsluofn við sláturhús KS við Háeyri á Sauðárkróki. Hafa þeir óskað eftir nýju starfsleyfi þess efnis. Starfsleyfið sem kaupfélagið óskar eftir snýst meðal annars um að KS starfræki brennsluofn við sláturhúsið hjá sér og hafi þannig heimild til að brenna allt að 6 tonnum á dag af eigin úrgangi, dýrahræjum og áhættuvefjum úr sláturhúsi KS. Því er ósk KS að eftirlitið veiti fyrirtækinu heimild til að brenna allt að 2.200 tonnum af dýrahræjum á ári. Heilbrigðiseftirlitið samþykkti á síðasta fundi sínum, þann 1. júlí síðastliðinn, að auglýsa eftir athugasemdum um starfsleyfið og gefa þannig öllum þeim sem málið varðar tækifæri til að kynna sér tillögur og skila inn athugasemdum. Sigurjón Þórðarson, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra, segir tillögurnar nú til skoðunar og að beðið verði eftir athugasemdum. „KS er ekki leyfilegt að brenna úrgangi frá öðrum, aðeins eigin úrgangi frá sláturhúsinu. Þarna er sláturhúsið að reyna að koma í veg fyrir urðun á sýktu kjöti og vill því hafa heimild til að brenna það á svæði sínu.“ Þegar Sigurjón er spurður hvort það sé ekki svolítið vel í lagt að leyfa sláturhúsinu að brenna næstum 2.200 tonn af lífrænum úrgangi á ári segir hann mjög ólíklegt að KS nýti sér heimildina að fullu. „Sláturhúsi er auðvitað í mun að brenna eins lítið og hægt er af matvælum,“ segir Sigurjón. „En ég árétta að það hefur ekkert leyfi verið gefið út enn og tillögurnar eru bara í athugasemdaferli. Það er hins vegar gott að fá umfjöllun um málið og að bæjarbúar kynni sér málið.“ Umræddur brennsluofn, sem gæti afkastað rúmlega tvö þúsund tonnum af úrgangi, verður staðsettur við Háeyri, nyrst í bænum. Upplýsingar frá framleiðanda þess brennsluofns sem KS hefur hug á að kaupa tekur fram að útblástursmælinga sýna að búnaðurinn uppfyllir viðmið sem sett eru í Evrópulöggjöf um brennslu úrgangs.
Mest lesið Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Erlent Fleiri fréttir Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Sjá meira