Innlent

Vilja brenna 2.000 tonn af dýrahræjum

Sveinn Arnarson skrifar
Ef brennsluofninn yrði nýttur að fullu verða til 65 tonn af ösku á hverju ári sem þarf að koma fyrir.
Ef brennsluofninn yrði nýttur að fullu verða til 65 tonn af ösku á hverju ári sem þarf að koma fyrir.
Kaupfélag Skagfirðinga hefur óskað eftir samþykki Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra til að setja upp brennsluofn við sláturhús KS við Háeyri á Sauðárkróki. Hafa þeir óskað eftir nýju starfsleyfi þess efnis.

Starfsleyfið sem kaupfélagið óskar eftir snýst meðal annars um að KS starfræki brennsluofn við sláturhúsið hjá sér og hafi þannig heimild til að brenna allt að 6 tonnum á dag af eigin úrgangi, dýrahræjum og áhættuvefjum úr sláturhúsi KS. Því er ósk KS að eftirlitið veiti fyrirtækinu heimild til að brenna allt að 2.200 tonnum af dýrahræjum á ári.

Heilbrigðiseftirlitið samþykkti á síðasta fundi sínum, þann 1. júlí síðastliðinn, að auglýsa eftir athugasemdum um starfsleyfið og gefa þannig öllum þeim sem málið varðar tækifæri til að kynna sér tillögur og skila inn athugasemdum.

Sigurjón Þórðarson, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra, segir tillögurnar nú til skoðunar og að beðið verði eftir athugasemdum. „KS er ekki leyfilegt að brenna úrgangi frá öðrum, aðeins eigin úrgangi frá sláturhúsinu. Þarna er sláturhúsið að reyna að koma í veg fyrir urðun á sýktu kjöti og vill því hafa heimild til að brenna það á svæði sínu.“

Þegar Sigurjón er spurður hvort það sé ekki svolítið vel í lagt að leyfa sláturhúsinu að brenna næstum 2.200 tonn af lífrænum úrgangi á ári segir hann mjög ólíklegt að KS nýti sér heimildina að fullu. „Sláturhúsi er auðvitað í mun að brenna eins lítið og hægt er af matvælum,“ segir Sigurjón. „En ég árétta að það hefur ekkert leyfi verið gefið út enn og tillögurnar eru bara í athugasemdaferli. Það er hins vegar gott að fá umfjöllun um málið og að bæjarbúar kynni sér málið.“

Umræddur brennsluofn, sem gæti afkastað rúmlega tvö þúsund tonnum af úrgangi, verður staðsettur við Háeyri, nyrst í bænum. Upplýsingar frá framleiðanda þess brennsluofns sem KS hefur hug á að kaupa tekur fram að útblástursmælinga sýna að búnaðurinn uppfyllir viðmið sem sett eru í Evrópulöggjöf um brennslu úrgangs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×