Ný humarmið fundin suður af landinu Svavar Hávarðsson skrifar 8. október 2015 08:00 Humar er orðinn svo eftirsóttur á innanlandsmarkaði að ekki fá allir sem vilja. mynd/GHG
Íslenski humarflotinn hefur fundið ný humarmið – veiði hefur verið góð af stórum og fallegum humri í haust. Öflugur vöxtur ferðaþjónustunnar hefur gjörbreytt markaði með humar. „Það var seinni partinn í ágúst sem skipstjórar humarbáta frá Þorlákshöfn reyndu fyrstir fyrir sér á þessu svæði. Þetta eru mjög velkomnar fréttir þar sem humarveiðin hefur verið dræm í sumar. Þetta er stór og fallegur humar og jöfn og góð veiði,“ segir Guðmundur H. Gunnarsson, framleiðslustjóri sjávarútvegsfyrirtækisins Skinneyjar – Þinganess í Hornafirði, en um langt árabil hefur humarveiði íslenskra báta komið að stærstum hluta af sex grunnveiðisvæðum. Nýju miðin munu vera utar og dýpra suðvestur af landinu en hefðbundin humarmið. Þetta og fleira verður kynnt á Sjávarútvegsdeginum í Hörpu í dag.Guðmundur H. Gunnarsson, framleiðslustjóri Skinneyjar – ÞinganessÁ sama tíma og nýfundin humarmið styðja við veiðar og vinnslu hefur Skinney – Þinganes unnið að þróun nýrrar aðferðar við að vinna humarkjöt úr kló krabbans – hráefni sem hefur hingað til verið að stórum hluta urðað eða brætt. Guðmundur segir fyrirtækið þegar hafa fundið aðferð til að ná kjötinu úr klónni með ásættanlegri nýtingu, og undirbýr að setja upp litla vinnslu á athafnasvæði sínu í Hornafirði. Nú sé hins vegar eftir að taka skrefið frá frumframleiðslu til fullunninnar vöru – svo nú er horft til gæða- og markaðsmála. Vonir standa til að hægt sé að bjóða matgæðingum þessa nýju vöru strax á næsta ári við upphaf næstu humarvertíðar. Samstarf við Matís hófst árið 2012 við að vinna úr gömlum pælingum sem settar voru fram í skýrslum frá Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins. „Við veltum því upp hvort hægt væri, með aðferðum nútímans, að ná kjötinu nýtanlegu úr klónni,“ segir Guðmundur og bætir við spurður um markaðsmálin að það blasi við að byrjað verði á heimamarkaði. „Það er gaman að segja frá því að markaðurinn fyrir humar hefur vaxið verulega á síðustu árum, og nú er eftirspurnin meiri en framboðið. Þetta er einn anginn af byltingu í ferðaþjónustu og íslenskir veitingastaðir eru orðnir mjög stórir viðskiptavinir. Lengi vel keppti innanlandsmarkaður ekki við útflutninginn og menn voru ekki tilbúnir að borga það verð fyrir heilan humar, og humarhala, sem bauðst erlendis. Þetta hefur breyst. Ég vona því að við séum að bjóða nýja og áhugaverða afurð sem er ódýrari en humarhalinn,“ segir Guðmundur.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira