Merkel segir ESB-ríki ekki munu hvika frá reglu um frálst flæði fólks Atli Ísleifsson skrifar 29. maí 2015 14:17 David Cameron og Angela Merkel funduðu í Berlín í morgun. Vísir/AFP
Angela Merkel Þýskalandskanslari segist ekki útiloka breytingar á sáttmála Evrópusambandsins til tryggja áframhaldandi aðild Bretlands að sambandinu. Merkel segir að hún muni verða „uppbyggilegur samstarfsaðili“ Breta til að ná fram breytingum á sambandi ESB og Bretlands. David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, og Merkel funduðu í morgun þar sem Merkel sagðist hiklaust vera þeirrar skoðunar að Bretland ætti áfram að vera aðili að sambandinu.Í frétt BBC segir að leiðtogarnir hafi rætt ákveðin atriði er varða mögulegar breytingar. Merkel segir þó aðildarríki sambandins ekki munu hvika frá þeirri meginreglu sambandsins sem snýr að frjálsu flæði fólks. Cameron hyggst funda með leiðtogum aðildarríkja Evrópusambandsins á næstu vikum þar sem hann mun greina frá því að Bretland muni segja skilið við sambandið, verði ekki gerðar breytingar á aðild ESB og Bretlands. Cameron hét því á síðasta kjörtímabili að kosið yrði um framtíð aðildar Bretlands að ESB, ynni Íhaldsflokkurinn sigur í þingkosningunum sem fram fóru fyrir þremur vikum. Íhaldsflokkurinn vann hreinan meirihluta á þinginu. Fyrr í dag var Cameron í Póllandi þar sem hann ræddi við Ewa Kopacz, forsætisráðherra Póllands.
Tengdar fréttir Frakkar segja afstöðu David Cameron hættulega Forsætisráðherrann ætlar sér að endursemja um aðild Bretlands að Evrópusambandinu. 28. maí 2015 22:01 Kosningar um aðildina að ESB Bretadrottning flutti í gær stefnuræðu Camerons. Meðal helstu mála má nefna þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB, aukin völd til Skotlands, Wales og Norður-Írlands og auknar heimildir leyniþjónustunnar til að fylgjast með farsímanotkun fólks. 28. maí 2015 08:00 Cameron hittir leiðtoga aðildarríkja ESB David Cameron hyggst funda með leiðtogum aðildarríkja ESB þar sem hann hyggst tryggja stuðning við breytingar á ESB-aðild Bretlands. 28. maí 2015 14:33 Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fleiri fréttir Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Sjá meira
Frakkar segja afstöðu David Cameron hættulega Forsætisráðherrann ætlar sér að endursemja um aðild Bretlands að Evrópusambandinu. 28. maí 2015 22:01
Kosningar um aðildina að ESB Bretadrottning flutti í gær stefnuræðu Camerons. Meðal helstu mála má nefna þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB, aukin völd til Skotlands, Wales og Norður-Írlands og auknar heimildir leyniþjónustunnar til að fylgjast með farsímanotkun fólks. 28. maí 2015 08:00
Cameron hittir leiðtoga aðildarríkja ESB David Cameron hyggst funda með leiðtogum aðildarríkja ESB þar sem hann hyggst tryggja stuðning við breytingar á ESB-aðild Bretlands. 28. maí 2015 14:33