Beittu táragasi á mann sem gleypti fíkniefni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. ágúst 2015 16:30 Frá handtökunni á Vestmannagötu um kvöldmatarleytið í gær. Vísir/KTD
Á sjötta tug fíkniefnamála hafa komið upp á Heimaey í tengslum við Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina. Blaðamaður varð vitni að því þegar starfsmenn fíkniefnadeildar lögreglu beittu táragasi á mann við Vestmannabraut í gær. Sex lögregluþjónar með þrjá leitarhunda sjá alfarið um fíkniefnaleit á Þjóðhátíð. Átta fíkniefnabrot komu upp á fimmtudagskvöld, 22 á föstudagskvöld og á þriðja tug bættust við í gærkvöldi. Mest er um hvít efni að ræða en annars virðist alla flóruna vera að finna. Fjóra lögreglumenn þurfti til að yfirbuga mann á Vestmannabraut á áttunda tímanum í gærkvöldi sem var grunaður um að hafa gleypt efni í þann mund sem handtaka átti manninn. Lét maðurinn ófriðlega við handtökuna, var tekinn í jörðina og beittu lögreglumennirnir að endingu táragasi. Maðurinn óskaði eftir lögmanni sínum áður en hann var leiddur inn í stærri lögreglubíll sem mætti á vettvang.Geta skaðað sjálfa sig Jóhannes Ólafsson, yfirlögregluþjónn í Vestmannaeyjum, þekkti ekki til málsins þegar blaðamaður ræddi við hann síðdegis. Hann sagði þó það koma fyrir að menn reyndu að gleypa efni og þá væri reynt að grípa inn í sem allra fyrst. Ekki síst í þeim tilgangi að hjálpa viðkomandi enda geti verið skaðlegt að gleypa mikið magn efna. Enginn gisti þó fangageymslur í nótt vegna fíkniefnabrota. Í flestum tilfellum þeirra 50-60 brota sem upp hafa komið um helgina er um neysluskammta að ræða en þó liggur í sumum tilfellum grunur um að efni hafi verið ætlað til sölu. Það hafi meðal annars verið tilfellið hjá einum sem var með tíu skammta af LSD á sér. Allajafna er málum sem þessum lokið á staðnum en menn fá svo sekt senda í pósti þar sem algeng upphæð er 50-60 þúsund krónur þótt það fari auðvitað eftir magni og tegund. Greiði menn ekki sektina geta málin svo farið fyrir dóm. Stríður straumur fólks hefur verið til Eyja í dag og segist Jóhannes reikna með því að um 15 þúsund manns, að meðtöldum heimamönnum, verði í Herjólfsdal í kvöld þegar Brekkusöngurinn fer fram. Ingólfur Þórarinsson hefur leik klukkan 23 en bein útsending verður á Bylgjunni, Stöð 2 og Vísi.
Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent Fleiri fréttir 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Sjá meira