Leggja til dag tileinkaðan mannréttindum barna Stefán Ó. Jónsson skrifar 15. júní 2015 18:28 VÍSIR
Á Alþingi liggur nú fyrir þverpólitísk þingsályktunartillaga um að 20. nóvember ár hvert, dagurinn þegar barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna var samþykktur hérlendis, verði helgaður fræðslu um mannréttindi barna í skólum landsins. Barnasáttmálinn var lögfestur hér á landi árið 2013 og felur í sér skuldbindandi samkomulag þjóða heims um sérstök réttindi fyrir börn, óháð réttindum fullorðinna. Aðildarríki sáttmálans skuldbinda sig til að kynna meginreglur og ákvæði samningsins víða með viðeigandi og virkum hætti, jafnt börnum sem fullorðnum. Í nefndaráliti allsherjar- og menntamálanefndar segir að allir þeir umsagnaraðilar sem nefndin ráðfærði sig við hafi verið jákvæðir um efni þingsályktunartillögunnar og hafi bent á mikilvægt væri að fræðsla um réttindi barna væri samofin starfi þeirra í skólum landsins. “Nefndin tekur undir þessi sjónarmið og vísar til þess að einstaklingar þurfa að þekkja réttindi sín til þess að geta notið þeirra og staðið vörð um þau. Slík þekking er einnig forsenda þess að þeir sýni réttindum annarra tilhlýðilega virðingu og geti lagt sitt af mörkum til að tryggja að þeir fái notið þeirra,” segir í álitinu. Þar segir ennfremur að mikilvægt sé að leggja áherslu á kynningu og fræðslu um barnasáttmálann en slíkir fræðadagar eru nú þegar viðhafðir til fræðslu um íslenska tungu og íslenska náttúru. „Barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna hefur lagt áherslu á kynningu og fræðslu um samninginn í ábendingum sínum til íslenskra stjórnvalda og hefur meðal annars hvatt til þess að mælt verði fyrir um hana í skólanámskrám. Slík fræðsla hlýtur að eiga að vera þáttur í almennu skólastarfi og samtvinnuð því með ýmsum hætti alla skóladaga. Tillagan er liður í því að stuðla að þessari mikilvægu kynningu og fræðslu um barnasáttmálann og skyldu ríkisins til þess að hafa árlega sérstakan dag í skólum sem er helgaður fræðslu um barnasáttmálann og þau mikilvægu og margvíslegu mannréttindi sem þar er mælt fyrir um.” Að tillögunni standa níu þingmenn; Páll Valur Björnsson sem jafnframt er framsögumaður frumvarpsins, Unnur Brá Konráðsdóttir formaður allsherjar- og menntamálanefndar, Líneik Anna Sævarsdóttir, Elsa Lára Arnardóttir, Guðbjartur Hannesson, Helgi Hrafn Gunnarsson, Jóhanna María Sigmundsdóttir, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir og Hanna Birna Kristjánsdóttir.
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Sjá meira