Átök í fjölbýli í Breiðholti: „Áður en ég vissi af lá ég í jörðinni rotaður“ Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 17. apríl 2015 20:22 Halldór hlaut áverka á höfði, alls fjóra skurði og sauma þurfti þrjú spor í tvo þeirra. vísir
Til átaka kom í íbúðarhúsi við Grýtubakka 18 í Breiðholti í dag. Tveir menn brutu sér leið inn í blokkina og hugðust sækja sér einhverja muni í geymsluna. Halldór Pétur Ásbjörnsson, húsráðandi í blokkinni, varð var við mennina er hann var á leið til vinnu um klukkan hálf sjö í morgun. Þeir voru þá klæddir í föt af honum úr geymslunni.Barinn með áhaldi í höfðið „Þetta voru gömul vinnuföt af mér sem ég þekkti. Ég tók upp símann og ætlaði að hringja á lögreglu en þá gekk annar þeirra beint að mér mér og ég lenti í áflogum við hann og náði að lokum að slá hann niður. Þá kom hinn aftan að mér og lamdi mig í hausinn með einhverju áhaldi. Hann sá ég aldrei. Þeir héldu áfram að sparka í mig og áður en ég vissi af lá ég í jörðinni, rotaður,“ segir Halldór Pétur í samtali við Vísi. Halldór hlaut áverka á höfði, alls fjóra skurði og sauma þurfti þrjú spor í tvo þeirra. Annar árásarmannanna hlaut áverka á nefi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu fannst annar þeirra skammt frá vettvangi og hinn gaf sig fram til lögreglu síðar í dag. Þeim var sleppt að yfirheyrslum loknum. Þeir hafa áður komið við sögu lögreglu.Þakkar fyrir að barnið hafi ekki vaknað Halldór segist hafa orðið fyrir miklu áfalli og þakkar fyrir að tveggja ára sonur hans hafi ekki vaknað við lætin. Hann segir íbúa blokkarinnar hafa vaknað við lætin en ekki áttað sig á alvarleika málsins. „Þetta var hrikalegt. Ég var bara einn þarna en er því líka feginn, því ég er ekki viss um að hver sem er hefði getað tekist á við þetta. Nágrannarnir héldu í fyrstu að það væru flutningar í gangi en konan mín kom hlaupandi og sá mig liggjandi í gólfinu og hringdi á lögregluna,“ segir hann. Hann segist þó hafa það fínt núna en ætlar að kæra mennina. Boðað hefur verið til húsfundar vegna málsins sem hófst á áttunda tímanum í kvöld.
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Sjá meira