Íbúðir fyrir ungt fólk í Kópavog Sæunn Gísladóttir skrifar 10. október 2015 08:00 Ármann kynnti skýrslu starfshópsins í gær en auk hans skipuðu hópinn Margrét Friðriksdóttir, Theódóra S. Þorsteinsdóttir, Pétur Hrafn Sigurðsson, Ólafur Þór Gunnarsson og Kristinn Dagur Gissurarson. vísir/vilhelm
Í nýrri skýrslu Kópavogsbæjar um stöðu húsnæðismarkaðarins leggur starfshópur til að Kópavogsbær fari í samstarfsverkefni með byggingarverktaka um byggingu minni íbúða á viðráðanlegu verði til hagsbóta fyrir ungt fólk sérstaklega. Markmiðið væri þá að auka framboð lítilla íbúða sem fólk hefði efni á að annaðhvort leigja eða kaupa og jafnframt aðstoða ungt fólk við kaup á fyrstu fasteign. Lagt er til að hægt væri að skilyrða byggingarrétt við að hluti íbúðanna væri ætlaður fyrir kaupendur að fyrstu íbúð. Þeim sem væru að kaupa sína fyrstu íbúð væri gefinn kostur á 90 prósenta láni. Lagt er til að í nýjum hverfum og á uppbyggingarsvæðum, meðal annars í Auðbrekku, Kársnesi, Glaðheimum og Smáranum, verði íbúðir sem henti yngra fólki. „Ég vil nýta þessa skýrslu og þessar leiðir til að draga ungt fólk inn í hverfin. Við erum að þétta byggðina og við þéttingu byggðar eigum við skóla, leikskóla og íþróttahús og önnur mannvirki sem við viljum nýta betur. Þessi þjónusta er til staðar fyrir þetta unga fólk. Hverfin okkar geta ekki byggst upp á fólki á aldursbilinu 55 ára og yfir. Ég vil að bæjarstjórnin leggi sig fram við að draga að ungt fólk,“ segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri. Í gær kynnti þverpólitískur starfshópur Kópavogsbæjar skýrsluna. Lagt er til að einhver hluti hverfa í uppbyggingu taki tillit til áherslna sem koma fram í skýrslunni, meðal annars með auknu framboði á minni íbúðum. Íbúðirnar verða allt frá tveggja herbergja 40 fermetra upp í fjögurra herbergja 90 fermetra íbúðir og verða á verðbilinu 16-30 milljónir. Með 90% láni væru útborgun því á bilinu 1,6-3 milljónir króna. Hlutverk Kópavogsbæjar væri að tryggja samstarfsgrundvöll við byggingarverktaka og lánastofnanir. „Við höfum óformlega rætt við byggingarverktaka um þetta. Ekki á öllum svæðum. En ég hef talað við aðila sem eru jákvæðir án þess að hafa neglt niður einhver hlutföll. Þeim sem eru með stærri svæði líst ekkert illa á þetta því það er markaður fyrir þetta,“ segir Ármann. Aðspurður segist Ármann bjartsýnn á að þetta geti gengið eftir. Einnig að 90 prósent húsnæðislán verði möguleiki þar sem til dæmis. Íslandsbanki bjóð allt að 90 prósent lán á ákveðnum skilyrðum. „Þar fyrir utan höfum við rætt við banka um það að ef við náum að vera með íbúðir sem passa inn í þeirra módel eru þeir tilbúnir að lána þetta hátt hlutfall,“ segir hann. Ármann segir að tillögurnar séu mögulegar innan núverandi byggingarreglugerðar, hins vegar sé hægt að gera enn betur í breytingu reglugerða til að lækka byggingarkostnað. „Það er hægt að gera enn betur ef hugmyndir varðandi það að reglugerðin taki mið af því að fólk geti sjálft ákveðið hvað það vill inni í íbúðum ganga eftir. Það eru miklu meiri tækifæri í þessu með því að losa upp skilyrði innan núverandi byggingarreglugerðar, sem er þó betri en sú sem var áður,“ segir Ármann.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Fleiri fréttir Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Sjá meira