Árni ætlar að kæra stjórn Dýraverndarsambandsins fyrir ærumeiðingar Birgir Olgeirsson skrifar 12. október 2015 12:01 Árni Stefán Árnason dýraverndarlögfræðingur og Hallgerður Hauksdóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands. Vísir/stefán/gva
Dýraverndarar á Íslandi eru komnir í hár saman vegna notkunar á Dýraverndaranum. Nú er svo komið að Árni Stefán Árnason ætlar að kæra alla stjórn Dýraverndarsambands Íslands til lögreglunnar fyrir ærumeiðingar og hefur Dýraverndarsambandið sent kvörtun til Neytendastofu vegna notkunar Árna Stefáns á nafni og myndmerki Dýraverndarans. Dýraverndarinn er tímarit sem Dýraverndarsamband Íslands stofnaði til árið 1915. Útgáfa á tímaritinu hafði legið í dvala frá níunda áratug síðustu aldar. Árið 2011 ákvað Árni Stefán að taka upp notkun á nafninu Dýraverndarinn á samfélagsmiðlum og eignaðist lénið dyraverndarinn.is. Árið 2012 ákvað Dýraverndarsamband Íslands að hefja endurútgáfu á tímaritinu.„Valdið ruglingi og vanda fyrir félagið“ Þessar deilur á milli Árna Stefáns og stjórnarinnar eiga sér því einhverja forsögu en 2. september síðastliðinn birtist á heimasíðu Dýraverndarsambandsins tilkynning þar sem talað er um óheimila notkun á titli tímarits Dýraverndarsambandsins. Var sú spurning lögð upp í tilkynningu hvort rétt væri að gefa með villandi hætti til kynna að maður skrifi í nafni félagasamtaka og taldi stjórn sambandsins svo ekki vera. „Um allnokkra hríð hefur annar aðili notað titil tímaritsins til að kynna skoðanir sínar og atvinnutengda sérfræðiþekkingu á málefnum dýraverndar á netinu (bæði með heimasíðu og á fésbókarsíðu) og hefur það valdið ruglingi og vanda fyrir félagið,“ segir í tilkynningunni. Þar segist stjórnin hafa beðið Árna Stefán um að láta af þessari notkun fyrir ríflega ári síðan en hann neitaði. Var þá hafist handa við að fá skráð einkaleyfi á þessu heiti hjá Einkaleyfastofu sem fékkst.Krafðist afsagnar formannsins Dýraverndarsambandinu barst í kjölfar yfirlýsing frá Árna Stefáni sem birt var á heimasíðu sambandsins þar sem hann skoraði á stjórn Dýraverndarsambandsins að láta af notkun Dýraverndarans tafarlaust svo ekki þurfi að bregðast við henni með lögformlegum hætti. Skoraði Árni Stefán á stjórn sambandsins að krefjast afsagnar formanns þess, Hallgerðar Hauksdóttur. Í samtali við Vísi segist Árni Stefán ætla að kæra alla stjórn Dýraverndarsambandsins fyrir ósannsögli og aðdróttanir.„Nóg boðið“ „Sem er búið að vera ríkjandi núna í ár um það sem ég er búinn að vera gera í íslenskri dýravernd. Þar sem verið er að núa mér það um nasir að nýta mér þetta heiti dyraverndarinn.is í fjárhagslegum ávinningi, sem er rangt og ég get sýnt fram á með skattaskýrslu. Mér er nóg boðið núna því ég er búinn leggja mig fram síðastliðin fjögur ár frá því ég byrjaði að fást við málefni dýraverndar sem lögfræðingur að þessu sé haldið fram um mig og mannorð mitt skert með þessum hætti af stærstu dýraverndarsamtökum á Íslandi, sem líklegt er að meirihluti landsmanna sem ekki þekki til mála, taki trúanleg frekar en mín orð.“ Hann segist ætla að afhenda lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu kæruna sem hann er með tilbúna gegn stjórninni. Ef lögreglustjórinn vísar þessu fram ætlar Árni Stefán að stefna stjórninni fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur. Sjá einnig hér.Harma að þurfa að standa í deilum Hallgerður Hauksdóttir, formaður Dýraverndarsambandsins, segir stjórnina harma það að þurfa að standa í þessum deilum. „En okkur er enginn annar kostur en að verja eigur félagsins,“ segir Hallgerður sem hefur ekki íhugað afsögn.
Mest lesið Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Fleiri fréttir Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Sjá meira