Tvítug barnapía fer ekki í fangelsi fyrir barnaníð gegn 11 ára dreng Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 5. október 2015 14:42 Faðir drengsins lýsti syni sínum sem "kynóðum“ en hann hafði einnig átt í kynferðislegu sambandi við barnapíuna. vísir/getty
Tuttugu og eins árs gömul barnapía sem braut kynferðislega gegn 11 ára dreng mun ekki fara í fangelsi þar sem dómari taldi konuna svo óþroskaða andlega að aldursmunurinn á milli fólksins væri í raun minni en 10 ár. Konan, Jade Hatt sem er frá Swindon í Englandi, var að passa drenginn þegar hún afklæddist, klæddi hann úr og hafði kynmök við hann. Faðir drengsins lýsti syni sínum sem „kynóðum“ en hann hafði einnig átt í kynferðislegu sambandi við barnapíuna. Þá sagði faðirinn son sinn mjög reynslumikinn í kynlífi og varði Hatt sem hann sagði óþroskaða. Atvikið hefði auk þess ekki haft mikil áhrif á son hans. Dómarinn tók tillit til þessa þegar hann kvað upp dóminn og sagði við Hatt: „Eftir að hafa farið yfir öll gögn málsins er nokkuð augljóst að hann var þroskaður 11 ára drengur og þú óþroskuð tvítug kona svo það minnkar aldursmuninn á ykkur. Þá hef ég lesið vitnisburð föður drengsins hjá lögreglunni þar sem hann segist ekki líta á þig sem venjulega tvítuga konu. Ég hef einnig farið yfir það hvaða áhrif þetta á að hafa haft á drenginn.“ Hatt var því dæmd í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára. Þá verður hún skráð á lista yfir kynferðisbrotamenn næstu sjö ár auk þess sem hún má ekki hafa samband við unga drengi næstu tvö árin án liðveislu. Nánar má lesa um málið á vef Telegraph.Uppfært: Fyrirsögn fréttarinnar hefur verið breytt og því hafa allar athugasemdir við fréttina dottið út. Beðist er velvirðingar á þessu.
Mest lesið „Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu“ Erlent „Persónulegir þættir koma hér hvergi nærri“ Innlent Sjö handteknir í tengslum við meiriháttar líkamsárás Innlent Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ Erlent Eins og ef einhver myndi hella vatni yfir tölvu Innlent Umdeildir leikir í sumarbúðum: „Það eru sem betur fer breyttir tímar“ Innlent Árekstur við Suðurlandsbraut Innlent Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Erlent Fyrri umræðu um þjóðaratkvæði lokið Innlent Betra að setja upp sólgleraugu inni á kvöldin en úti í morgunsólinni Lífið Fleiri fréttir Fjögur hundruð fíklar sagðir liggja í valnum eftir árásir Pakistana Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ „Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu“ Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Starfsmannastjóri Trumps greinist með krabbamein Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Gengst við kókaínneyslu rétt fyrir kosningar Fjárhættuspilarar hóta blaðamanni lífláti Vilja tækni og peninga fyrir aðstoð gegn írönskum drónum Frost í kolefnisföngun í Svíþjóð Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Hóta að svipta fjölmiðla leyfinu vegna umfjöllunar um stríðið Rýnt í kosningarnar í Færeyjum: Frændur slást um lögmannsstólinn John Alford fannst látinn í fangelsinu Skoða möguleikann á að farga kolefni undir Eystrasalti Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Forseti Kúbu segir viðræður við Trump-liða eiga sér stað Kvarnast upp úr grænlensku landsstjórninni Markmiðið enn að koma í veg fyrir að Íranir eignist kjarnavopn en hvernig? Allir sex látnir eftir að herflugvél brotlenti í Írak Svíar stöðvuðu annað skuggaskip Tvær misheppnaðar hryðjuverkaárásir á einum degi Telur að Bandaríkjastjórn vilji sundra Evrópu Franskur hermaður féll í drónaárás í Írak Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Bandarísk herflugvél fórst í Írak Sjá meira