Greindi ranglega frá nafni drengsins og sagði barnsmóðurina látna Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 7. október 2015 18:15 Maðurinn kom til landsins ásamt ólögráða dreng þann 20. ágúst síðastliðinn en hann sagðist vera á ferðalagi með syni sínum. Ekki reyndist unnt að ræða við drenginn við komuna til landsins vegna tungumálaörðugleika. Vísir/Andri Marinó
Karlmaður frá Serbíu hefur verið úrskurðaður í farbann til föstudagsins 30. október. Hann kom til landsins ásamt ólögráða dreng þann 20. ágúst síðastliðinn en hann sagðist vera á ferðalagi með syni sínum. Ekki reyndist unnt að ræða við drenginn við komuna til landsins vegna tungumálaörðugleika.Maðurinn framvísaði skilríkjum fyrir báða tvo við komuna til landsins en eftir rannsókn lögreglu viðurkenndi maðurinn að skilríkin væru fölsuð. Við leit í farangri fannst fæðingarvottorð drengsins auk skjals sem virtist benda til þess að maðurinn hefði leyfi frá foreldrum til að ferðast með drenginn.Lögreglan leitaði til alþjóðalögreglunnar Interpol við rannsókn málsins.Vísir/EPALögreglustjóri telur engan vafa á því að maðurinn sé ekki faðir drengsins Lögreglan sendi fyrirspurn til alþjóðalögreglunnar Interpol og fékk upplýsingar um rétt nafn mannsins og sömuleiðis að drengurinn væri skráður sem horfinn aðili af fjölskyldu sinni. Væri maðurinn grunaður um að hafa numið drenginn á brott. Svari Interpol fylgdu ljósmyndir af drengnum sem tilkynnt væri að hefði horfið og þeim aðila sem talinn var hafa numið hann á brott. Rannsókn skilríkjasérfræðinga lögreglu staðfesti að um sömu aðila væri að ræða. Við yfirheyrslur hélt maðurinn því meðal annars fram að hann væri faðir drengsins og hefði fulla heimild til að ferðast með hann. Lögregla metur þó sem svo að skýrslur hans séu ótrúverðugar. Hafi hann þurft að leiðrétta sig varðandi nafn meintrar barnsmóður. Í fyrstu hefði hann greint frá því að hún væri látin en svo dregið það til baka. Þá er alls óljóst hve lengi maðurinn hefur þekkt fjölskyldu drengsins. Móðirin hafi sjálf greint frá því að fjölskyldan hafi ekki kynnst honum fyrr en árið 2013. Drengurinn sagði manninn ekki föður sinn og hann hefði fyrst hitt hann árið 2013. Kærði segist hins vegar hafa umgengist drenginn frá unga aldri. Lögreglustjóri telur engan vafa á að maðurinn sé ekki faðir drengsins.Hæstiréttur staðfesti úrskurð Héraðsdóms um farbannVísir/GVAGreindi vísvitandi ranglega frá nafni drengsins Lögreglustjóri telur einnig að skýringar kærða á komu hans hingað til lands séu ótrúverðugar. Kærði hafi borið að hann væri hingað kominn til að hitta vin sinn og fyrrverandi nágranna sem væri íslenskur ríkisborgari. Hann vissi ekki hvernig hann ætti að komast í samband við hann hér á landi enda hafði hann hvorki símanúmer né heimilisfang. Við eftirgrennslan lögreglu í þjóðskrá hafi komið í ljós að enginn hér á landi sé skráður með þessu nafni. Maðurinn greindi vísvitandi ranglega frá nafni drengsins en skipt um skoðun er lögregla hafi borið annað nafn undir hann. Telur lögregla ljóst að kærði hafi hvað eftir annað gefið lögreglu vísvitandi rangar upplýsingar um atvik málsins, sjálfan sig og drenginn sem með var honum í för. Var maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald þann 22. ágúst til 4. september og í framhaldinu í áframhaldandi gæsluvarðhald til 2. október.Ákæra gefin út eftir helgi - Grunaður um að hafa nýtt falsað skjal Rannsókn málsins er lokið og er reiknað með því að gefin verði út ákæra í málinu eftir helgi. Maðurinn er grunaður um að hafa notað falsað skjal en refsing við því varðar allt að átta ára fangelsi. Af hálfu lögreglustjóra er til þess vísað að svo virðist sem kærði hafi engin tengsl við land og þjóð. Hann stundi hvorki atvinnu hér né eigi hér fjölskyldu eða vini. Af þeim sökum telji lögregla hættu á að kærði muni reyna að komast úr landi eða leynast ellegar koma sér með öðrum hætti undan málsókn eða fullnustu refsingar gangi hann laus meðan mál hans er til meðferðar hjá lögreglu. Héraðsdómur hafnaði kröfu um gæsluvarðhald þar sem maðurinn er ekki lengur grunaður um alvarleg brot gagnvart drengnum. Honum er hins vegar bönnuð brottför af landinu til 30. október.Dóm Hæstaréttar má lesa hér.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Fleiri fréttir „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Sjá meira