Íþróttameiðsli skuggalega algeng Svavar Hávarðsson skrifar 8. október 2015 08:00 Erlingur Jóhannsson
Rúmlega helmingur þeirra ungmenna sem æfðu með íþróttafélagi á 12 mánaða tímabili þurfti læknisfræðilega aðstoð einu sinni eða oftar vegna íþróttameiðsla. Þeir sem æfðu meira en sex klukkustundir á viku voru fimmfalt líklegri til þess að hafa leitað læknisfræðilegrar aðstoðar en þeir sem æfðu sex klukkustundir eða minna. Þetta er meðal niðurstaðna rannsóknar á algengi íþróttameiðsla, íþróttaþátttöku og brottfalli vegna meiðsla hjá 17 og 23 ára ungmennum. Rannsóknin náði til 457 ungmenna og er ein af mörgum sem eru byggðar á gögnum úr rannsókninni Atgervi ungra Íslendinga sem er langtímaheilsufarsrannsókn á ungmennum fæddum 1988 og 1994. Fjallað er ítarlega um rannsóknina í nýjasta Læknablaðinu, sem er meistaraverkefni Margrétar H. Indriðadóttur í íþrótta- og heilsufræði við Háskóla Íslands. Erlingur Jóhannsson, verkefnastjóri rannsóknarinnar og prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, segir blasa við að íþróttameiðsli hérlendis séu vandamál sem full ástæða sé til að taka mjög alvarlega. Ein sé sú staðreynd hversu margir leituðu til læknis innan ársins, en jafnframt að 8,4% af hópnum sem stundað hafði íþróttir hættu beinlínis vegna íþróttameiðsla. Meira álag og áhersla hjá fleirum á afreksíþróttir sé ein ástæða þessa.„Það er eitthvað í þjálfuninni sem er ekki að virka og ekki alltaf reyndir og hæfir þjálfarar í kringum þetta fólk. Þetta er kannski hin hliðin á afreksmennskunni – meiðsli eru tíðari þegar meiri árangur næst í íþróttum,“ segir Erlingur og bætir við að um sé að ræða þátttöku hjá íþróttafélögum og heilsurækt. Heilsuræktarstöðvarnar verði að taka þetta til sín einnig og sjá til þess að hæfir þjálfarar séu að leiðbeina ungu fólki á faglegan hátt. Á heimsvísu skortir rannsóknir á íþróttameiðslum barna og unglinga en þær fáu rannsóknir sem til eru benda til þess að algengið sé mikið. Staðan meðal íslenskra ungmenna virðist síst betri og því afar brýnt að efla íslenskar rannsóknir til þess að fá frekari vitneskju um íþróttameiðsli og fórnarkostnaðinn sem þeim fylgir. Erlingur segir að samband á milli íþróttameiðsla og heilsuvandamála síðar á ævinni komi greinilega í ljós í rannsókninni. „Rannsóknin sýnir forspárgildi þess að íþróttameiðsli á unglingsaldri eru ávísun á verri heilsu síðar í lífinu,“ segir Erlingur og bætir við að það undirstriki mikilvægi rannsókna og virkra forvarna.
Mest lesið Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Innlent Fleiri fréttir Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Sjá meira