Bjóða flóttafólki heim til Hóla Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 8. október 2015 07:00 Hluti Hólahópsins sem vill taka á móti flóttafólki. Frá vinstri Gylfi Jónsson, Broddi Reyr Hansen, Solveig Lára Guðmundsdóttir, Guðmundur Björn Eyþórsson, Guðrún Helgadóttir og Erla Björk Örnólfsdóttir. Á myndina vantar Bjarna Kr. Kristjánsson, Hrönn Jónsdóttur og Guðrúnu Þóru Gunnarsdóttur. Mynd/Laufey Haraldsdóttir „
Eitt föstudagssíðdegið sátum við Hólafólk saman og ræddum málefni líðandi stundar. Þá kom upp þessi hugmynd að það væri gaman að bjóðast til að taka á móti flóttafólki hér á Hólum,“ segir Guðmundur Björn Eyþórsson, íbúi á Hólum í Hjaltadal. Hópur íbúa á Hólum hefur sent sveitarstjóra Skagafjarðar bréf þar sem fagnað er ályktun bæjarráðs frá 3. september síðastliðnum þar sem sveitarstjóra er falið að kanna möguleika á að Skagafjörður taki á móti flóttafólki. „Hólar hafa margt upp á að bjóða,“ segir Guðmundur. „Þetta er afar friðsælt samfélag og þetta er afar alþjóðlegt samfélag, hér eru margir Íslendingar auðvitað og allt að sextán þjóðerni yfir vetrartímann, nemendur í skólanum.“ Guðmundur segir samfélagið vel í stakk búið til að taka á móti fólki, þar sé nægt húsnæði og samfélagið sé afar fjölskylduvænt. Hópurinn sem undirritar bréfið vekur athygli á að á Hólum sé friðsælt og barnvænt samfélag en hugmyndin hafi verið kynnt fyrir félagasamtökum, leik- og grunnskólum á svæðinu við góðar undirtektir.Guðmundur segir Hóla í Hjaltadal opið og fjölskylduvænt samfélag.Mynd/Guðmundur Björn„Íslendingar hafa lýst því yfir að einstæðar mæður og hinsegin fólk eigi greiðasta leið til landsins og hvetjum við sveitarféalgið Skagafjörð að íhuga að bjóða flóttafólki búsetu á Hólum,“ segir í bréfi hópsins. Byggðaráð Skagafjarðar samþykkti að hafa erindið til hliðsjónar í málefnum flóttamanna. „Þetta yrði eflaust mikil áskorun en að sjálfsögðu áttum við okkur á því að hugur þarf að fylgja máli, það er ekki bara nóg að skrifa bréf,“ segir Guðmundur og bendir á að þó að atvinnutækifæri séu kannski ekki mörg séu Hólar kjörinn staður til að hjálpa flóttafólki að aðlaga sig íslensku samfélagi og hjálpa því að feta sig áfram eftir aðlögunartímann.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Fleiri fréttir Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Sjá meira