Markmiðið að útrýma lifrarbólgu C Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 8. október 2015 07:00 Gamla meðferðin gegn lifrarbólgu C felst í vikulegum sprautum í allt að ár. Nýja meðferðin er í töfluformi og tekur fáeinar vikur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Nýju átaki til að útrýma lifrarbólgu C á Íslandi og stemma stigu við útbreiðslu sjúkdómsins verður hleypt af stokkunum undir lok ársins eða í síðasta lagi í byrjun næsta árs. Átakið er samstarfsverkefni heilbrigðisyfirvalda og lyfjafyrirtækisins Gilead sem leggur til lyfin. Lyfin kosta 7-13 milljónir á hvern sjúkling og fá 95-100 prósent sjúklinga bata. Ríkisstjórnin hefur samþykkt að leggja til 150 milljónir króna á ári í blóðrannsóknir og aðra þjónustu sem tengist meðferðinni. Öllum sem greinst hafa með veiruna verður boðin fræðsla, meðferð og eftirfylgni og þar með verður lágmörkuð hætta á nýjum tilvikum sjúkdómsins með smiti milli manna. Á Íslandi eru kjöraðstæður til að ráðast í slíkt verkefni þar sem samfélagið er lítið, þekking er fyrir hendi og nauðsynlegir innviðir heilbrigðiskerfisins.Sigurður Ólafsson, umsjónarlæknir lifrarlækninga á Landspítalavísir/stefánSigurður Ólafsson, umsjónarlæknir lifrarlækninga á Landspítala, hefur haft forystu um innleiðingu átaksverkefnisins sem hefur verið í undirbúningi síðastliðið ár. „Hingað til hefur meðferð við lifrarbólgu C tekið frá hálfu ári upp í eitt ár með vikulegum sprautum á lyfinu interferon. Það eru miklar aukaverkanir af meðferðinni, svo sem þreyta, þunglyndi, vöðva- og liðverkir og svefntruflanir, og stundum hefur þurft að stöðva meðferð vegna þeirra. Einnig er árangurinn eingöngu um 75 prósent,“ segir Sigurður. Nýja lyfjameðferðin tekur eingöngu nokkrar vikur og aukaverkanir eru litlar sem engar. Nú þegar hefur lyfjameðferð hafist meðal sjúklinga sem eru verst settir og settir í forgang. Aðrir sjúklingar sem ekki eru í forgangi en munu nú fá meðferðina einnig finna þó mikið fyrir sjúkdómnum. „Lifrarbólga C hefur mikil áhrif á daglegt líf og það er klárt að fólk býr við verulega skert lífsgæði.“Var gjörsamlega brotinKarlotta Dúfa Markan hefur undanfarið eitt og hálft ár staðið í ströngu. Síðasta árið hefur hún verið að jafna sig á lyfjameðferð við lifrarbólgu C og hálft ár þar á undan var hún í vikulegum sprautum. Hún fagnar nýja lyfinu innilega fyrir aðra sjúklinga. „Þetta eru flottar fréttir. Það þarf ansi sterk bein til að ganga í gegnum hina meðferðina enda veit ég um marga sem hafa gefist upp á meðferðinni. Ég er heppin, á góða að og gat leyft mér að taka alveg eitt og hálft ár í að vera hálf manneskja. Það eru ekki allir í þeirri stöðu.“ Karlotta missti hárið í meðferðinni, var með mikla bein- og höfuðverki og svo tók meðferðin á andlega. „Maður er svo brotinn. Maður hefur engan styrk eða þrótt og er ólíkur sjálfum sér. Ég er fyrst núna farin að kannast við sjálfa mig. En fyrir mér var það þess virði – meðferðin gekk vel og ég er útskrifuð. En ég er búin að þurfa að hafa gífurlega mikið fyrir þessum bata.“Þórarinn TyrfingssonMikilvægt að koma í veg fyrir smitSÁÁ er meðal þeirra sem hafa unnið að undirbúningi átaksins. Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir hlutverk samtakanna vera að finna lifrarbólgusjúklinga og koma þeim til meðferðar. „Sjötíu prósent þeirra sem sprauta sig í eitt ár eða lengur fá lifrarbólgu. Það hefur ekki verið hægt að ná niður þessu hlutfalli með fræðslu eða útbreiðslu nála. Það er fullreynt. En þessi lyf og nýja meðferðin gefa raunhæfan og góðan möguleika á að koma í veg fyrir ný tilfelli. Þetta eru að mínu mati stærstu fréttir heilbrigðisþjónustunnar í ár.“ Þórarinn segir þá sem eru í neyslu vera í forgangshópnum. „Hugsunin er að meðhöndla þá fyrst sem eru í mestri hættu á að smita aðra. Því er mikilvægt að finna þetta fólk og koma því í meðferð.“
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Fleiri fréttir „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Sjá meira