Ætlar að virkja samfélagsþjónustu til að stytta biðlista í fangelsi Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 27. september 2015 20:15
Innanríkisráðherra ætlar að endurskipuleggja framtíðarskipulag fangelsismála til að koma til móts við biðlista, meðal annars með því að virkja samfélagsþjónustu. Ekki sé þó hægt að minnka aðhaldskröfu í fangelsismálum í fjárlögum næsta árs, eins og fangelsismálastjóri hefur gagnrýnt harðlega.Páll Winkel, fangelsismálastjóri, sagði í fréttum okkar í síðustu viku að stofnunin þyrfti að segja upp starfsfólki og fækka fangaplássum til að mæta boðuðum niðurskurði í fjárlagafrumvarpi næsta árs. Stofnunin þarf að skera niður um ellefu milljónir króna á næsta ári en frá hruni hefur hún þurft að þola rúmlega 25 prósenta niðurskurð. Innanríkisráðherra segir að gagnrýni Páls komi ekki á óvart. „Fangelsismálastjóri hefur margoft sett fram ýmiskonar gagnrýni í fjárveitingum til fangelsismála. Hann veit það náttúrlega alveg jafn vel og ég að okkur er þröngur stakkur búinn. Við erum að reisa hér nýtt fangelsi, það er mjög mikilvægt að það komist í gegn á réttum tíma. Í fyrra fékk fangelsismálastofnun töluvert mikla aðhaldskröfu. Þannig er það ekki núna,“ segir Ólöf. 450 manns bíða nú eftir afplánun en fangelsismálastjóri segir viðbúið að biðlistar muni lengjast ef aukið fjármagn verður ekki sett í málaflokkinn. Ólöf segir að ráðuneytið þurfi að skera niður allstaðar. „Lögreglan þarf líka að passa vel upp á sitt fé og ég var að enda við að leggja til miklu minna fé til samgöngumála. Þetta er bara með þessum hætti og það verður bara að gera þá kröfu á okkur öll að reyna að fá eins mikið út úr þeim fjármunum sem fást og hægt er. Ég verð sú fyrsta sem fagnar því ef við fáum meira fé í þessa málaflokka. En menn verða bara að vinna með þá stöðu sem þeir hafa. Þannig er það bara,“ segir hún. Í þessu samhengi sé mikilvægt að ræða framtíðarskipulag fangelsismála í heild sinni. „Ég hef verið að varpa því fram að koma með önnur úrræði í fangelsismálum og líta meira til samfélagsþjónustu og þesskonar þátta. Það myndi draga úr álagi á fangelsinu og þar með spara fé. Ég er búin að setja þetta í gang og held að það sé eitt af þeim framfaramálum sem við erum að vinna að í ráðuneytinu,“ segir Ólöf Nordal.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla komu á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira