Tæp tvö þúsund tonn af lambakjöti til frá í fyrra Sveinn Arnarsson skrifar 1. september 2015 07:00 Árlega er slátrað um 10 þúsund tonnum af lambakjöti á Íslandi. Nú eru um eitt þúsund og átta hundruð tonn eftir. Þórarinn Ingi Pétursson segir magnið nú minna en í fyrra.
Um eitt þúsund og átta hundruð tonn af lambakjöti voru enn til í sláturhúsum landsins af sláturtíð síðasta hausts þann 1. ágúst síðastliðinn. Nú fer að líða að því að sláturtíð hefjist á þessu ári og er líklegt að slátrað verði um 10 þúsund tonnum þetta haustið.Þórarinn Ingi ?Pétursson, ?formaður Landssamtaka sauðfjárbænda.Þórarinn Ingi Pétursson, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda, segir þetta magn ekki mikið. „Við erum að selja um 500 tonn á mánuði svo þetta er ekki svo mikið magn af kjöti sem eftir er frá sláturtíð í fyrra,“ segi Þórarinn. „Bendi ég á að hér fyrir nokkrum árum áttum við um eitt þúsund tonn eftir þegar sláturtíð hófst og þá töluðu menn um kjötskort í landinu.“ Sauðfjárstofninn á Íslandi hefur verið að stækka síðustu ár eftir að hafa verið í sögulegu lágmarki árið 2005. Hér á landi eru rétt tæplega 500 þúsund kindur og um 550 þúsund dilkum er slátrað á hverju ári.Þórólfur ?Matthíasson, ?prófessor.mynd/kristinn ingvarsson„Það að við séum með tæplega tvö þúsund tonn af óseldu lambakjöti í frystigeymslum frá því fyrir rétt tæpu ári sýnir að markaðsforsendur eru ekki fyrir hendi í greininni. Verðið ætti því að bregðast við með réttum hætti og lækka verð til neytenda. Markaðurinn er ekki í þessum geira að bregðast við með réttum hætti gagnvart offramboði eða vanframboði," segir Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði. Þórarinn Ingi bendir á að verð til bænda hafi lækkað frá því í fyrra og segir hann marga sauðfjárbændur skoða hvort grundvöllur sé til staðar til að halda áfram framleiðslu. „Ég veit um þó nokkra bændur sem ætla sér að hætta í haust og aðra sem eru að skoða þetta. Afurðaverð til bænda stóð í stað milli ára. Á meðan allt annað hækkar í framleiðslunni þá fáum við sömu krónutöluna fyrir gripinn,“ segir Þórarinn og spáir því að lömbin verði minni í ár en í fyrra. „Ég gæti trúað því að í þessari sláturtíð verði fallþungi dilka í slæmu meðalári. Ótíð í vor og sumar hefur þar hönd í bagga.“
Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Erlent Fleiri fréttir Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Sjá meira