Strætóferðir gætu fallið niður vegna manneklu Stefán Ó. Jónsson skrifar 1. september 2015 18:35 Vísir/Pjetur
Röskun getur orðið á þjónustu Strætó á höfuðborgarsvæðinu á næstu vikum þar sem ekki hefur tekist að manna allar stöður vagnstjóra. Einstaka ferðir gætu fallið niður sem og að aukavagnar verða ekki alltaf til taks á fjölförnum leiðum. Ástæðan er fyrst og fremst sú að þjónusta Strætó hefur aukist talsvert að undanförnu og enn standa yfir sumarleyfi vagnstjóra. Í tilkynningu frá Strætó segir að um millibilsástand sé að ræða sem ekki er gert ráð fyrir að vari til langs tíma. Viðskiptavinir Strætó eru hvattir til að fylgjast vel með heimasíðu Strætó bs. þar sem reglulega verða settar inn tilkynningar um hvaða ferðir falla niður. „Lögð verður áhersla á að halda uppi ferðum á fjölmennum og mikið notuðum leiðum þannig að ferðir falli frekar niður á þeim leiðum sem minna eru notaðar. Vegna þessa er mikið álag á vagnstjórum og eiga þeir hrós skilið fyrir hversu vel þeir hafa staðið undir því. Við biðjum viðskiptavini okkar velvirðingar á skertri þjónustu og um að sýna vagnstjórum skilning,“ segir í tilkynningunni. Unnið er hörðum höndum að ráðningu nýrra starfsmanna og mönnun vakta. Það verkefni gengur vel að sögn talsmanns Strætó og „bætast nýir vagnstjórar í hópinn á hverjum degi auk þess sem von er á fleiri vagnstjórum í september og október.“
Mest lesið Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast Innlent Fleiri fréttir Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Sjá meira