Enn kvartað yfir sólbaðsstofu inni á Beauty tips Birgir Olgeirsson skrifar 3. september 2015 15:06 Viðskiptavinir sólbaðsstofunnar Sportsólar hafa kvartað undan því að vera rukkaðir þrátt fyrir að áskrift þeirra við fyrirtækið sé lokið en eigandinn fullyrðir að þessi mistök hafi verið leiðrétt. Vísir/Getty
Mikil umræða hefur farið fram um sólbaðsstofuna Sportsól inni á síðu Facebook-hópsins Beauty Tips. Málið snýst um tólf mánaða samning sem viðskiptavinum er boðið upp þar sem þeir greiða 3.490 krónur á mánuði og geta þá farið eins oft í ljós og þeim sýnist. Einhverjir meðlimir Beauty tips hafa kvartað yfir því að þegar samningstímanum lýkur eftir 12 mánuði þá eru þeir samt sem áður rukkaðir áfram fyrir þessa þjónustu þó þeir hafi ekki óskað eftir því og ítrekað lýst því yfir við fyrirtækið að þeir hafi engan hug á að halda áskriftinni áfram. Hafa nokkrir lýst því hvernig þessi skuld þeirra sem hefur safnast upp gagnvart Sportsól, sem nemur tugum þúsund í einhverjum tilvikum, sé komin í innheimtu. Segja þeir sem tjá sig um málið að erfitt hafi reynst að ná á forsvarsmenn fyrirtækisins til að koma þessu í lag og því sé ítrekað lýst yfir að eigendaskipti eigi sér stað hjá fyrirtækin en verið sé að reyna að koma þessu í lag.Fjallað um sama mál í janúar Fjallað var síðast um Sportsól á vef Smartlands í janúar síðastliðnum þar sem greint var frá sama vanda. Viðskiptavinum Sportsólar sem höfðu verið í áskrift hjá fyrirtækinu gekk erfiðlega að segja upp áskriftinni til að fá greiðslurnar stöðvaðar. Smartlandið ræddi við eiganda Sportsólar, Björgin Þór Þorsteinsson, við það tilefni sem sagði þessi mistök hafa verið leiðrétt og fullyrti að allir sem hefðu lent í þessu „veseni“ hefur fengið endurgreitt. Tók hann fram í samtali við Smartland að hann væri búinn að selja fyrirtækið til nýrra eigenda. Vísir náði tali af Björgvini vegna málsins sem fullyrðir að búið sé að lagfæra þessi mistök sem nefnd eru á vef Beauty tips í tengslum við áskriftina. Hann segir nýja félagið sem tekið hefur við rekstrinum heita Sportljós ehf.Ekki leitað til Neytendastofu Meðlimir Beauty tips töluðu um að leita til Neytendastofu vegna málsins en Þórunn Anna Árnadóttir, sviðsstjóri neytendaréttarsviðs, segir að eftir því sem næst verður komist hefur Neytendastofu ekki borist fyrirspurnir varðandi bindingu í samningi hjá sólbaðsstofu.
Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Erlent Fleiri fréttir Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Sjá meira