Hvað gerist ef við töpum fyrir Hollandi? Jakob Bjarnar skrifar 3. september 2015 16:09 Illugi: „Það er ekki heimsendir þótt Ísland tapi fyrir Hollandi í dag. Mun mikilvægara er að vinna næstu tvo heimaleiki, gegn Kasakstan og Lettlandi.“
Spennustigið er að hækka verulega nú þegar tæpir þrír tímar eru í leik Íslands við Holland í undankeppni EM 2016. Illugi Jökulsson rithöfundur og þjóðfélagsrýnir er sérfróður um fótbolta, hefur reyndar tekið saman bækur um knattspyrnuhetjur og hann leiðir vini sína á Facebook um stöðu mála í riðlakeppninni sjálfri. Sem skiptir jú öllu máli. Hvað gerist ef við vinnum? Hvað gerist ef við töpum? Hvað gerist ef það verður jafntefli? Það eru nefnilega ýmsir möguleikar í stöðunni en takmarkið er vitaskuld að komast á EM. Illugi kann að lesa í töflur og stöðuna í riðlinum, sem er snúin. Vísir brytjaði niður rýni Illuga og þá lítur þetta svona út:1. „Það er ekki heimsendir þótt Ísland tapi fyrir Hollandi í dag. Mun mikilvægara er að vinna næstu tvo heimaleiki, gegn Kasakstan og Lettlandi. Ef það tekst en aðrir leikir annarra liða fari á versta veg fyrir okkur, þá verðum við í öðru sæti fyrir lokaumferðina (þrátt fyrir tap í dag), stigi á eftir Tékkum og tveim stigum á undan Hollendingum,“ skrifar Illugi.2.„Þá spilum við gegn Tyrkjum á útivelli. Hollendingar taka á móti Tékkum, og ef þeim hollensku tekst ekki að vinna þá endum við í öðru sæti riðilsins, sama þó við töpum á móti Tyrkjum. Og förum beint á EM. Ef Hollendingar vinna hins vegar Tékka en við töpum fyrir Tyrkjum, þá lendum við í þriðja sæti og förum í umspil sem væri ekki gott.“3. „Ef Hollendingar vinna Tékka í lokaumferðinni en við gerum jafntefli við Tyrki, þá lendum við, Tékkar og Hollendingar saman í þremur efstu sætum riðilsins. Þá kemur til skjalanna markamunur í innbyrðis viðureignum liðanna þriggja og ef þessi (vel hugsanlegi) möguleiki kemur upp, þá er mikilvægt að hafa ekki tapað stórt gegn Hollandi.“4. „Ef við vinnum hins vegar Tyrki, þá skiptir engu hvað Hollendingar og Tékkar gera, við förum alltaf beint áfram. En allt snýst þetta um að vinna Kasaka og Letta.“Það er ekki heimsendir þótt Ísland tapi fyrir Hollandi í dag. Mun mikilvægara er að vinna næstu tvo heimaleiki, gegn...Posted by Illugi Jökulsson on 3. september 2015
Mest lesið Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Innlent Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Hafnaði úti í fjöru Innlent Beint streymi frá Gleðigöngunni Innlent Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Erlent Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent Endaði út af eftir framúrakstur Innlent Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Innlent Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Erlent Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Innlent Fleiri fréttir Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Óskhyggja að vonast eftir afgerandi svari og deilan harðnar 72 ár síðan síðast en 170 ár þar til næst Slökkvilið brást við tilkynningu um reyk Hafnaði úti í fjöru Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Endaði út af eftir framúrakstur Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Sjá meira