Hátt í fjörutíu stelpur skráðar til leiks í æfingabúðir Gettu betur Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 24. ágúst 2015 12:12 Frá Gettu betur-æfingabúðunum sem haldnar voru í fyrsta sinn í fyrra. mynd/elín elísabet einarsdóttir
Æfingabúðir Gettu betur-stelpna fara fram í annað sinn um næstu helgi, þann 28.-30. ágúst. Að sögn Maríu Helgu Guðmundsdóttur, formanns Gettu betur-stelpna, er búist við að um 35 stúlkur taki þátt í búðunum í ár. „Þetta er fyrir stelpur í efstu bekkjum grunnskóla, í 9. og 10. bekk, og svo fyrir stelpur í framhaldsskóla. Búðirnir hefjast á föstudagskvöld og standa yfir alla helgina,“ segir María Helga. Þátttakendur greiða 1500 króna staðfestingargjald í búðirnar en annars er mestallur kostnaður dekkaður með styrkjum. „Við höfum lagt upp úr því að hafa þetta aðgengilegt fyrir alla og veitum til að mynda stelpum utan af landi ferðastyrk svo þær geti tekið þátt. Þær eru síðan í fullu fæði hérna hjá okkur og fá öll námsgögn og allt slíkt,“ segir María Helga.Fræðsla og kynning á því hvernig Gettu betur gengur fyrir sig Búðirnar fara fram í húsnæði Verzlunarskóla Íslands og í Útvarpshúsinu í Efstaleitinu. Aðspurð um hvernig námskeiðið er byggt upp segir María Helga: „Þetta er svona sambaland af fræðslu og kynningu á því hvernig Gettu betur gengur fyrir sig. Hvernig það er að vera í liði, að komast í lið, hvernig Gettu betur-keppendur æfa og hvernig maður aflar sér upplýsinga. Svo tökum við líka á félagslega þættinum, við reynum að hrista hópinn saman, höfum spilakvöld og reynum að fá þær til að kynnast innbyrðis. Við reynum svona að veita þeim alhliða innsýn inn í það hvernig það er að taka þátt í spurningakeppni og hvað þetta getur verið skemmtilegt.“ Búðunum lýkur svo með æfingamóti þar sem stelpunum er skipt upp í lið og þær keppa í nokkurs konar mini-Gettu betur sem fer fram á Markúsartorgi í Útvarpshúsinu í settinu þar sem útvarpskeppnir Gettu betur fara fram.Auður Tinna Aðalbjarnardóttir og María Helga Guðmundsdóttr, tvær þeirra sem standa að æfingabúðunum.mynd/elín elísabet einarTelur að kynjakvótinn hafi gefist vel Kynjakvóti var í fyrsta sinn í Gettu betur í fyrra og þurfa nú bæði stelpur og strákar að vera í liðum Gettu betur. María Helga segir að hún viti um þrjár stelpur sem komu í æfingabúðirnar í fyrra sem fóru svo í Gettu betur-liðið í sínum skóla. Hún telur að það hafi gefist vel að taka upp kynjakvóta í keppninni. „Það höfðu verið gerðar ýmsar tilraunir svona til þess að auka þátttöku og áhuga stelpna en það hafði bara ekki borið árangur. Það var ennþá þannig að 95% keppenda í sjónvarpi voru strákar, ár eftir ár eftir ár. Þegar maður horfir á keppnirnar sem voru í fyrra, þar sem var stelpa í hverju einasta liði, þá gefur það auga leið að þetta voru ekkert síðri keppnir og jafnvel skemmtilegri ef eitthvað er, þannig að ég held að þetta hafi bara sannað sig,“ segir María Helga. Enn er hægt að skrá sig til leiks í æfingabúðirnar en skráning fer fram hér.
Tengdar fréttir Menntaskólinn í Reykjavík vann FG í úrslitum Gettu betur MR sigraði Gettu betur í nítjánda skipti í kvöld. 11. mars 2015 21:00 Miðbæjarslagur í átta liða úrslitum Kvennaskólinn í Reykjavík mætir Menntaskólanum í Reykjavík í átta liða úrslitum spurningakeppni framhaldsskólanna. 20. janúar 2015 22:26 MR í úrslit Gettu betur Unnu sigurliðið frá því í fyrra, MH, með 31 stigi gegn 25. 25. febrúar 2015 21:15 #TilfinningaTómas trendaði á Twitter Tómas Geir Howser Harðarson, einn liðsmanna Gettu betur-liðs Fjölbrautaskólans í Garðabæ, vakti athygli fyrr í kvöld líkt og endranær. 11. mars 2015 23:34 Margrét Maack gerir Gettu Betur upp: „Tókst betur en við þorðum að vona“ Kynjakvótarnir skiluðu sér í skemmtilegri stemningu og andrúmslofti segir spurningahöfundur Gettu Betur. 12. mars 2015 15:30 Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Skuggahliðar aukinnar sveppatínslu Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Skuggahliðar aukinnar sveppatínslu „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Sjá meira
Menntaskólinn í Reykjavík vann FG í úrslitum Gettu betur MR sigraði Gettu betur í nítjánda skipti í kvöld. 11. mars 2015 21:00
Miðbæjarslagur í átta liða úrslitum Kvennaskólinn í Reykjavík mætir Menntaskólanum í Reykjavík í átta liða úrslitum spurningakeppni framhaldsskólanna. 20. janúar 2015 22:26
MR í úrslit Gettu betur Unnu sigurliðið frá því í fyrra, MH, með 31 stigi gegn 25. 25. febrúar 2015 21:15
#TilfinningaTómas trendaði á Twitter Tómas Geir Howser Harðarson, einn liðsmanna Gettu betur-liðs Fjölbrautaskólans í Garðabæ, vakti athygli fyrr í kvöld líkt og endranær. 11. mars 2015 23:34
Margrét Maack gerir Gettu Betur upp: „Tókst betur en við þorðum að vona“ Kynjakvótarnir skiluðu sér í skemmtilegri stemningu og andrúmslofti segir spurningahöfundur Gettu Betur. 12. mars 2015 15:30