Tólf ára íslenskur drengur lést af óútskýrðum ástæðum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 26. ágúst 2015 11:07 Aron Andri Hall Arnarsson.
Tólf ára íslenskur drengur lét lífið á óútskýrðan hátt fyrir tveimur vikum í svefni daginn eftir að fjölskyldan sneri til landsins eftir mánaðarferðalag til Flórída í Bandaríkjunum. Stundin greinir frá en þar kemur fram að engan hafi grunað að drengurinn, Aron Andri Hall Arnarsson, væri með undirliggjandi mein. Aron fékk flogakast fyrir um ári en þó hefur ekki verið sýnt fram á að það tengist skyndilegu andláti hans. Föðurbróðir drengsins segir við Stundina að niðurstaðna sé að vænta frá sérfræðingum í Þýskalandi í september. Fjölskyldan eigi þó von á að dánarorsökin verði titluð sem óútskýrð.Aron Andri var nemandi í Ingunnarskóla og fékk meðal annars hvatningarverðlaun skólans fyrir tveimur árum fyrir samviskusemi, kurteisi, jákvæðni ogog fyrir að hafa verið framúrskarandi nemandi, hugmyndaríkur og listrænn.Í minningargrein sem birtist í Morgunblaðinu á dögunum þakka þau fyrir allar stundirnar með syni sínum sem hafi haft orð á því í ferðalaginu til Flórída og á leiðinni heim hve þakklátur hann væri fyrir ferðina.Aron Andri á góðri stund vestan hafs.Að neðan má sjá brot úr minningargrein sem foreldrar Arons Andra rituðu í Morgunblaðið. „Bros þitt var einstakt, enda kölluðum við þig oft „broskarlinn okkar“. Þú fékkst okkur til að brosa bæði þegar við vorum eitthvað súr og líka utan þess og þá léstu okkur bara brosa, komst með fallega andlitið þitt fyrir framan andlitin á okkur og settir upp þitt einstaka bros og hættir ekki fyrr en við brostum á móti, þvílíkur eiginleiki! Þú sagðir mörgum sinnum á dag „mér þykir vænt um þig“ og „mér þykir vænt um ykkur“ við okkur hin í fjölskyldunni, væntumþykja þín var og er ómetanleg og það er eitt af mörgu sem við viljum læra af þínu lífsskeiði hér á jörðinni. Þú kenndir okkur hvað ást er dýrmæt, hvað bros gerir mikla galdra og hvað einlægni og hreinskilni er mikilvæg. Við ætlum að taka þetta með okkur áfram lífsveginn og við vitum að þú fyrirgefur ef okkur tekst ekki nógu vel upp en við gerum okkar besta, þú hafðir mikil áhrif,“ segir í minningargreininni. Ættingjar og vinir hafa blásið til söfnunar fyrir fjölskylduna til að lágmarka fjárhagsáhyggjur á þessum erfiðu tímum. Þeir sem vilja leggja lið geta lagt inn á reikninginn hér að neðan.528-14-404005 kt. 190771-3859
Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Fleiri fréttir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Sjá meira