Fékk heimsókn frá IKEA: „Skiptir mestu að mismunun sé ekki umborin“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. ágúst 2015 09:09 Ólafur Ingi, Viktor Skúli og Sigurbjörg á góðri stundu í árslok 2012.
Sigurbjörg Hjörleifsdóttir, þriggja barna móðir sem búsett er í Ancara í Tyrklandi, greinir frá því á Facebook-síðu sinni að fjölskylda hennar hafi fengið heimsókn frá forsvarsmönnum IKEA í Tyrklandi og sömuleiðis afsökunarbeiðni. Sigurbjörg, sem er nýflutt til Tyrklands ásamt eiginmanni sínum og börnum, fékk ekki inni fyrir son sinn í barnalandi í IKEA á dögunum. Sonurinn Viktor Skúli sem er fjögurra og hálfs er með Downs-heilkenni og sagðist starfsfólkið ekki geta sinnt honum.Sigurbjörg og eiginmaður hennar, knattspyrnukappinn Ólafur Ingi Skúlason, fluttu í sumar frá Belgíu til Tyrklands. Hún hélt í IKEA með börnin þrjú og fékk fyrst þau svör að elsta dóttirin væri of gömul. Hún er átta ára en barnalandið væri aðeins ætlað börnum á aldrinum 3-6 ára.Sjá einnig:Hann gerir okkur öll að betri manneskjum Næst tilkynnti starfsfólkið að Viktor væri of lítill þrátt fyrir að hann væri á því aldursbili sem áður hafði verið gefið upp. Í kjölfarið var henni tilkynnt að hann gæti aðeins verið í barnalandinu í hálftíma þar sem hann ætti við „vandamál“ að stríða. Þau hefðu áhyggjur af því að hin börnin myndu meiða Viktor. Eftir rökræður Sigurbjargar við starfsfólkið var niðurstaðan sú að hann gæti ekki leikið sér í barnalandinu.Sjá Fésbókarfærslu frá Sigurbjörgu í morgun að neðan. I am a mother of three children, I am from Iceland. Me and my family move a lot because of my husbands work and we have...Posted by Sibba Hjörleifsdóttir on Saturday, August 22, 2015 Sigurbjörg deildi reynslu sinni í pósti á Facebook þar sem hún lýsir því hvernig hún hafi verið farin að skjálfa af reiði á þessum tímapunkti. Um beina mismunun væri að ræða og sagði hún starfsfólki að málinu væri ekki lokið. Í framhaldinu þurfti hún að útskýra fyrir börnum sínum að þau gætu ekki leikið sér í barnalandinu eins og til stóð.Nú, tæpri viku síðar, greinir Sigurbjörg frá því að afsökunarbeiðni hafi borist. Fjölmiðlaumfjöllun og færsla hennar á Facebook, sem deilt var yfir 1200 sinnum, hafi greinilega gert sitt gagn. „Tveimur dögum síðar fékk ég símtal þar sem ég var beðin afsökunar, tölvupóst og einnig heimsókn frá IKEA til að biðjast afsökunar og loforð um að þetta myndi ekki koma fyrir neinn aftur,“ segir Sigurbjörg í póstinum á Facebook. „Ég var alltaf bjartsýn á því að þau myndu biðjast afsökunar og verða meðvituð um mistökin. Það eina sem skiptir okkur máli er að mismunun, af hvaða toga sem er, sé ekki liðin.“ I want to thank all of you for sharing my story when Viktor did not get to play in IKEA's play land. The post was shared...Posted by Sibba Hjörleifsdóttir on Thursday, August 27, 2015
Tengdar fréttir Hann gerir okkur öll að betri manneskjum Hún horfði á okkur eins og við værum unglingar og sagði hranalega: "Þið gerið ykkur grein fyrir að líf ykkar er að fara að breytast töluvert. Þið getið gleymt þeim plönum sem þið hafið gert í bili.“ 22. desember 2012 15:00 Mest lesið Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Erlent Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Innlent Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Erlent Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Erlent Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Innlent Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Innlent Flughált í höfuðborginni og víðar um land Innlent Ingibjörg býður sig fram í formanninn Innlent Fleiri fréttir Ingibjörg býður sig fram í formanninn Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Sandra tekin við af Guðbrandi Flughált í höfuðborginni og víðar um land Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Sjá meira
Hann gerir okkur öll að betri manneskjum Hún horfði á okkur eins og við værum unglingar og sagði hranalega: "Þið gerið ykkur grein fyrir að líf ykkar er að fara að breytast töluvert. Þið getið gleymt þeim plönum sem þið hafið gert í bili.“ 22. desember 2012 15:00