Innlent

Seltjarnarnes: Eyðing bjarnarklóar gengur greiðlega

Atli Ísleifsson skrifar
Steinunn Árnadóttir garðyrkjustjóri með hluta af sumarstarfsmönnum Seltjarnarnesbæjar.
Steinunn Árnadóttir garðyrkjustjóri með hluta af sumarstarfsmönnum Seltjarnarnesbæjar. Mynd/Seltjarnarnesbær
Eyðing bjarnarklóar hefur gengið greiðlega á Seltjarnarnesi en jurtin hefur verið að stinga sér niður á opnum svæðum og í einkagörðum. Starfsmenn bæjarins hafa því ráðist í útrýmingu hennar í sumar.

Steinunn Árnadóttir, garðyrkjustjóri bæjarins, segir að almennt sé meira af kerfli, lúpínu og hvönn þetta árið á Seltjarnarnesi og hefur bærinn unnið markvisst að því undanfarin ár að sporna gegn útbreiðslu og vexti þessara plantna með eyðingu og slætti.

„Árangurinn hefur ekki látið á sér standa en núna er lúpínan nánast að hverfa af Valhúsahæðinni. Á vestursvæðunum hefur kerfillinn verið að sækja í sig veðrið og í sumar var flokkur ungmenna fenginn til að slá breiðu af kerfli sem var að stinga sér niður í Gróttu,“ segir í tilkynningu frá bænum.

Steinunn segist ánægð með árangurinn sem náðst hafi undanfarin fimm ár, en að vandasamt geti verið að hefta útbreiðslu plantnanna því varptími kríunnar og mófugla setji strik í reikninginn.

Að hennar sögn er mikilvægt að eyða eins miklu áður en varp hefst og ráðast svo aftur til atlögu þegar fuglinn er farinn af svæðunum. Hvað bjarnarklónni viðvíkur þá eru bæjarbúar hvattir til að skera hana niður verði þeir hennar varir en gæta þess að safinn úr plöntunni fari ekki á húðina því hann getur valdið miklum bruna.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×