Seltjarnarnes: Eyðing bjarnarklóar gengur greiðlega Atli Ísleifsson skrifar 12. ágúst 2015 10:48 Steinunn Árnadóttir garðyrkjustjóri með hluta af sumarstarfsmönnum Seltjarnarnesbæjar. Mynd/Seltjarnarnesbær
Eyðing bjarnarklóar hefur gengið greiðlega á Seltjarnarnesi en jurtin hefur verið að stinga sér niður á opnum svæðum og í einkagörðum. Starfsmenn bæjarins hafa því ráðist í útrýmingu hennar í sumar. Steinunn Árnadóttir, garðyrkjustjóri bæjarins, segir að almennt sé meira af kerfli, lúpínu og hvönn þetta árið á Seltjarnarnesi og hefur bærinn unnið markvisst að því undanfarin ár að sporna gegn útbreiðslu og vexti þessara plantna með eyðingu og slætti. „Árangurinn hefur ekki látið á sér standa en núna er lúpínan nánast að hverfa af Valhúsahæðinni. Á vestursvæðunum hefur kerfillinn verið að sækja í sig veðrið og í sumar var flokkur ungmenna fenginn til að slá breiðu af kerfli sem var að stinga sér niður í Gróttu,“ segir í tilkynningu frá bænum. Steinunn segist ánægð með árangurinn sem náðst hafi undanfarin fimm ár, en að vandasamt geti verið að hefta útbreiðslu plantnanna því varptími kríunnar og mófugla setji strik í reikninginn. Að hennar sögn er mikilvægt að eyða eins miklu áður en varp hefst og ráðast svo aftur til atlögu þegar fuglinn er farinn af svæðunum. Hvað bjarnarklónni viðvíkur þá eru bæjarbúar hvattir til að skera hana niður verði þeir hennar varir en gæta þess að safinn úr plöntunni fari ekki á húðina því hann getur valdið miklum bruna.
Tengdar fréttir Borgin sker upp herör gegn ágengum plöntum Reykjavíkurborg hyggst ráðast gegn útbreiðslu trölla-, húna- og bjarnarklóa í Reykjavík. 30. júlí 2015 14:27 Mest lesið Stór hluti felldur niður og Shamsudin-bræður játa Innlent Fórnarlamb stórhættulegs hrekks sem betur fer með hjálm Innlent Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Innlent Telur handtökuna byggja á slúðri Innlent „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent „Þessi sleggja, sem var sveiflað, var gúmmísleggja“ Innlent Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Erlent Lýst eftir Atla Vikari Innlent Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Erlent Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Erlent Fleiri fréttir Óska eftir myndefni af gröfunni Vendingar í hraðbankamálinu og húsnæði sem fólk vill ekki Fórnarlamb stórhættulegs hrekks sem betur fer með hjálm Lýst eftir Atla Vikari Síðustu aspirnar á Austurvegi felldar Björguðu ferðamanni sem hafði fest bílinn í aurbleytu við Hagavatn Gæsluvarðhaldskröfu hafnað í hraðbankamálinu „Þessi sleggja, sem var sveiflað, var gúmmísleggja“ Verkefni stjórnvalda að takast á við undantekningar í skólakerfinu Leiguverðshækkanir hafa étið upp hækkun húsnæðisbóta Stór hluti felldur niður og Shamsudin-bræður játa Meðalvelta á kaupsamning 75,6 milljónir króna Leysigeisla beint að tveimur flugvélum í aðflugi Nýr tvöfaldur vegarkafli að bætast við Suðurlandsveg Telur handtökuna byggja á slúðri Magnað sjónarspil: Einmana hrefna komst í gott „Lögreglan mun grípa fyrr inn í núna“ Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Gaf sig fram vegna hraðbankastuldar Aukið aðhald í ríkisfjármálum og lífsbarátta hvals „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn „Það er ekkert verið að innleiða einhver svakaleg próf í Kópavoginum“ Hamarsvirkjun í bið frekar en vernd Gæsluvarðhald leiðbeinandans framlengt Konur með örorkulífeyri líklegri til að vera þolendur ofbeldis Vanræksla staðfest en niðurfelling málsins líka Höfuðpaur fær þremur mánuðum lengri dóm en burðardýr Veðrið sem hlaupararnir á laugardag geta búist við „Þetta er innrás“ Viðkvæm gögn tengd stjórnmálaflokki séu á símanum Sjá meira
Borgin sker upp herör gegn ágengum plöntum Reykjavíkurborg hyggst ráðast gegn útbreiðslu trölla-, húna- og bjarnarklóa í Reykjavík. 30. júlí 2015 14:27