Ríkislögreglustjóri: Embættið fór ekki fram úr fjárheimildum Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 19. ágúst 2015 11:24 Haraldur Johannessen er ríkislögreglustjóri. Vísir/Stefán Karlsson
Ríkislögreglustjóri segir að embætti sitt hafi ekki farið fram úr fjárheimildum sínum fyrstu sex mánuði ársins líkt og kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. Aukin fjárframlög til embættisins hafi ekki verið talin með í uppgjöri Fjársýslu ríkisins sem fréttin var byggð á. Í frétt Ríkisútvarpsins segir að embætti ríkislögreglustjóra hafi farið ríflega 200 milljónir fram úr fjárheimildum sínum á fyrstu sex mánuðum ársins. Í fréttatilkynningu segir ríkislögreglustjóri að embætti sitt hafi ekki farið fram úr fjárheimildum, aukin fjárframlög úr ríkissjóði vegna eldsumbrotanna í Holuhrauni hafi ekki verið færðar yfir í rekstargrunn embættisins. „Á fundi ríkisstjórnarinnar þann 17. apríl sl. var samþykkt, á grundvelli tillögu samráðshóps ráðuneytisstjóra, að veita þeim stofnunum sem unnið hafa að vöktun, viðbúnaði og mælingum vegna Holuhrauns og eldsumbrotanna norðan Vatnajökuls aukin fjárframlög að upphæð 448,7 milljónir kr. árið 2015. Af þeirri fjárhæð var ákveðið að veita 108 m.kr. til embættis ríkislögreglustjóra. Fjárheimildir þessar voru ekki færðar af hálfu fjármálaráðuneytisins í rekstrargrunn embættisins þegar uppgjör Fjársýslu ríkisins fyrir fyrstu sex mánuði ársins var tekið saman og kynnt.“ Jafnframt segir að tekjur embættisins upp á 60 milljónir króna hafi vantað í uppgjör Fjársýslunnar. Ríkislögreglustjóri gerir ráð fyrir rekstur embættis ríkislögreglustjóra verði í jafnvægi við árslok en í lok árs 2014 hafi verið um 30 milljón kr. halli á rekstri lögreglubifreiða.
Mest lesið Telur handtökuna byggja á slúðri Innlent Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Innlent „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent „Lögreglan mun grípa fyrr inn í núna“ Innlent Magnað sjónarspil: Einmana hrefna komst í gott Innlent Nýr tvöfaldur vegarkafli að bætast við Suðurlandsveg Innlent Gaf sig fram vegna hraðbankastuldar Innlent Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Erlent Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Erlent Vanræksla staðfest en niðurfelling málsins líka Innlent Fleiri fréttir Nýr tvöfaldur vegarkafli að bætast við Suðurlandsveg Telur handtökuna byggja á slúðri Magnað sjónarspil: Einmana hrefna komst í gott „Lögreglan mun grípa fyrr inn í núna“ Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Gaf sig fram vegna hraðbankastuldar Aukið aðhald í ríkisfjármálum og lífsbarátta hvals „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn „Það er ekkert verið að innleiða einhver svakaleg próf í Kópavoginum“ Hamarsvirkjun í bið frekar en vernd Gæsluvarðhald leiðbeinandans framlengt Konur með örorkulífeyri líklegri til að vera þolendur ofbeldis Vanræksla staðfest en niðurfelling málsins líka Höfuðpaur fær þremur mánuðum lengri dóm en burðardýr Veðrið sem hlaupararnir á laugardag geta búist við „Þetta er innrás“ Viðkvæm gögn tengd stjórnmálaflokki séu á símanum Óbreyttir stýrisvextir, samræmd námspróf og breytt snið á Menningarnótt Kjósa um sameiningu Skorradalshrepps og Borgarbyggðar í september Enginn handtekinn vegna þjófnaðar á hraðbanka í Mosfellsbæ Brugðið eftir viðtal við borgarstjóra Mínútuþögn á Menningarnótt Kópavogsbær tekur aftur upp samræmd próf „Það er engin sleggja“ Slökktu eld í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti Mannleg mistök leiddu til birtingar draga í stað lokaútgáfu Einn hugðist bera sig og ber að ofan öskraði Ísland frumstætt samanborið við Noreg Færa vinsæla útitónleika yfir á sunnudag: „Ég ætla ekki bara að dæma ungmennin“ Kinnhestur frá Ingvari E. Sigurðssyni í tilefni af nýjum bjór Sjá meira