Upplýsingabyltingin fór fram hjá höfundi Reykjavíkurbréfsins Þóra Kristín Ásgeirsdóttir skrifar 20. júní 2015 21:00
Morgunblaðið ræðst að Ríkisútvarpinu í nýjasta Reykjavíkurbréfi og sakar stofnunina um að hafa leikið stórt hlutverk í Búsáhaldabyltingunni. Birgitta Jónsdóttir kapteinn Pírata segir sorglegt að ritstjóri elsta dagblaðs landsins skilji ekki fjölmiðla. Í Reykjavíkurbréfinu segir að þáttur Ríkisútvarpsins í Búsáhaldabyltingunni hafi verið að útvarpa skilaboðum mótmælenda um hvar tilteknir embættismenn byggju með fjölskyldum sínum og hvatningum ónafngeindra forsvarsmanna mótmælanna. Markmið byltingarinnar hafi verið að eyðileggja vinnufrið á Alþingi og að reyna að yfirtaka þingið með valdi ef annað dygði ekki til, Þinghúsið hafi þannig verið grýtt, með eggjum, grjóti og saur. Birgitta Jónsdóttir, kafteinn Pírata, segir að upplýsingabyltingin hafi greinilega farið framhjá höfundi Reykjavíkurbréfsins. Hann búi greinilega í gamla tímanum þegar valdhafar gátu stjórnað umræðunni. Aðgangur almennings að upplýsingum sé öflugasta tækið sem við eigum.Segjast bara hafa skrifað eina litla frétt á vefinn.Höfundur Reykjavíkurbréfsins telur að mótmælendur séu að ná vopnum sínum og minnist þar sérstaklega á mótmæli sem fóru fram gegn ríkisstjórninni á 17. júní.Birgitta Jónsdóttir PíratakafteinnVísir/stefánHann segir ömurlegt að hópur fólks taki sér rétt til að eyðileggja slíka stund fyrir þjóðinni. Og sérlega dapurlegt sé að eina stofnun landsins, sem Alþingi segir að starfi í þjóðarþágu, Ríkisútvarpið, skuli hafa látið eftir sér að þjónusta þennan hóp sérstaklega. Það merkilega er hinsvegar að starfsmenn Ríkisútvarpsins kannast bara við að hafa skrifað eina frétt um mótmælin og hana fremur sakleysislega. Birgitta segir að á undanförnum árum hafi oft verið reynt að grafa undan fréttamönnum sem reyni að fjalla um málin. Hún segir það varla svaravert þegar því sé haldið fram að RÚV eða aðrir fjölmiðlar stjórni því hvort fólk nýti rétt sinn til að tjá sig um það sem því finnst miður fara. Frétt Stöðvar 2 um málið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Mest lesið Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Fleiri fréttir Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Sjá meira