Innlent

Ferðalangar festust í Austdalsá

Bjarki Ármannsson skrifar
Frá Austfjörðum.
Frá Austfjörðum. Vísir/Pjetur
Björgunarsveitin Ísólfur á Seyðisfirði var kölluð út nú síðdegis þegar beiðni um aðstoð barst frá tveimur erlendum ferðalöngum sem fest höfðu bílaleigubíl sinn á leiðinni í Skálanes, nánar tiltekið í Austdalsánni.

Björgunarsveitin fór þegar á staðinn en þegar þangað var komið höfðu ferðamennirnir náð að koma sér sjálfir upp á bakkann hinu megin en bíllinn var enn í miðri ánni.

Samkvæmt tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg dró björgunarsveitin dró upp á bílaplan við ánna og sótti ferðafólkið yfir ánna. Fólkið er heilt á húfi og verið er að flytja það til Seyðisfjarðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×