Lausagönguhæna olli umferðaröngþveiti í Garðabæ Stefán Ó. Jónsson skrifar 23. júní 2015 15:54 Oddný segist vera mikill dýravinur og hafi ekki getað horft upp á hænuna kremjast á götunni. mynd/Food Co/Einkasafn
Oddný Dögg Friðriksdóttir komst í hann krappann í dag þegar hún reyndi að koma lausagönguhænu í Garðabæ til síns heima. Oddný var að aka eftir Hafnafjarðarvegi um klukkan eitt í dag þegar hún ók fram á hænsn sem spígsporaði meðfram einni umferðarþyngstu götu landsins. „Ég er nú ágætlega mikill dýravinur og ég gat hreinlega ekki haft það á samviskunni að skilja hænuna þarna eftir þannig að ég stöðvaði við Aktu taktu og hljóp út úr bílnum,“ segir Oddný í samtali við Vísi. Þaðan hafi hún hlaupið að nærliggjandi húsi til að grennslast fyrir um hvort einhver þar kannaðist við hænuna. „Þar kom maður til dyra og ég spurði hann hvort að hann væri nokkuð búinn að týna hænunni sinni. Hann hélt nú ekki þannig að ég hljóp aftur að veginum til að athuga með hænuna með tveimur stelpum úr húsinu,“ segir Oddný.Hænan út á Hafnafjarðarveg og Oddný á eftirViti menn, hænan var enn á sínum stað við veginn. Oddný segir að í ljósi þess að engin þeirra þriggja hafi haft neina reynslu af meðhöndlun fiðurfjár hafi þær stöllur ekki þorað að taka hænuna upp. „Við ákváðum því að reyna að smala hænunni frá veginum og í átt að grasinu sem var þarna við hliðina á,“ segir Oddný. Allt kom fyrir ekki, hænan æddi út í umferðina. „Við hlupum á eftir henni þarna út á veginn og reyndum að stöðva bílana sem voru allir akandi á fullri ferð. Ég meina, við gátum ekki horft á hænuna kremjast þarna á götunni.“ Eftir að hafa bæði næstum orðið fyrir bíl segir Oddný að henni hafi þó loksins tekst að ná hænunni af götunni. Hún hafi hlaupið á nærliggjandi tún og þar hafi Oddný misst sjónar af henni. Eftir að hafa keyrt um hverfið og bankað á dyr á tveimur húsum í grenndinni hafi Oddný gefið leitina upp á bátinn. „Fólk heldur örugglega að ég sé eitthvað biluð eftir þetta,“ segir hún en vonar að frásögn sín verði til þess að réttmætir eigendur hænunnar komist á snoðir um hana að lokum.
Mest lesið Halla slær á putta handboltahetjunnar Innlent Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Innlent „Ég á þetta og má þetta“ Innlent Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Innlent „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ Innlent Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Erlent Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Innlent Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands Erlent Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Innlent Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Innlent Fleiri fréttir Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Rannsóknaskipin gera hlé á loðnuleit vegna óveðurs Viðreisn býður fram undir merkjum Samfylkingar Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Ósammála um hvort lögregla hafi gefið fyrirmæli „Ég á þetta og má þetta“ „Það er ekki hægt að muna allan þennan djöful“ Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Hvalveiðimótmælin fyrir dóm og Danir segja ekkert samið um Grænland Húsleit fór fram víðar en á Akureyri Halla slær á putta handboltahetjunnar „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ „Sama hvað gerist þá sigra hvalirnir“ Ósammála um hvort Heiða sé „atvinnupólitíkus“ Kjósendur Flokks fólksins ekki fyrir framan tölvu alla daga Ölvaður og árásargjarn handtekinn í verslunarmiðstöð Sjá meira