Innlent

Láta hálfrar aldar gamlan draum rætast

Hrund Þórsdóttir skrifar
Vinirnir Grétar Gústavsson og Karl Friðriksson fóru fyrst fimm ára gamlir saman í sveit á bænum Valdarási. Þangað kom einn daginn forláta Massey Ferguson traktor, af tegundinni 35X frá árinu 1963. Hann varð bæði vinnu- og leiktæki þeirra félaga og nú hjálpar hann þeim að láta hálfrar aldar gamlan draum rætast.

„Traktorinn kom nýr á bæinn þegar við vorum tíu til tólf ára gamlir og þetta var náttúrulega eins og að fá Rolls Royce á planið. Ég sagði við Kalla: „Heyrðu, við förum á þessum hringinn“. Þá var þetta auðvitað fráleit hugmynd, því við hefðum aldrei fengið hann lánaðan, en svo hringdi Kalli í mig frá Kína löngu síðar og sagði: „Nú förum við!“, segir Grétar og Karl tekur undir. „Þetta blundaði alltaf með okkur, að við myndum láta vináttuna duga og gera þetta þegar við yrðum aðeins þroskaðri og eldri.“

Annar traktorinn nær aðeins tuttuguogníu kílómetra hraða svo ferðin tekur sinn tíma, eða um hálfan mánuð, en lögð er áhersla á að hafa öryggismálin í lagi.

Þeir félagar vonast eftir stuðningi þar sem keyrt er fyrir gott málefni, eða Vináttu, sem er forvarnarverkefni Barnaheilla gegn einelti. Hægt er að styðja átakið um 500 krónur með því að hringja eða senda sms með textanum „gegn einelti“ í síma 904 1900.

„Við teljum vináttu vera grundvöll fyrir góðri lífsferð fyrir alla,“ segir Karl.

En hvað skyldi vekja mesta tilhlökkun fyrir ferðina? „Ætli það sé ekki bara að fara niður brekkurnar,“ segir Grétar að lokum, en sjá má þá félaga halda af stað í ferðina í meðfylgjandi sjónvarpsfrétt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×