Fékk þrjú nálgunarbönn: Lögga segir ljósmyndir til af Sunnu á svölum við heimili hans Samúel Karl Ólason skrifar 10. júní 2015 15:45 Sunna Guðrún Eaton, betur þekkt sem Sunna Sweetness, er sökuð um að hafa brotið nálgunnarbann og hótað framkvæmdastýru Barnaverndar Reykjavíkur.
Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn Sunnu Guðrúnu Eaton fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Málið fjallar um nokkra ákæruliði sem snúa annars vegar að meintu broti Sunnu á nálgunarbanni gegn lögreglumanni og hótanir í garð Halldóru Drafnar Gunnarsdóttur, framkvæmdastýru Barnaverndar Reykjavíkur. Sunna var handtekin á Múlakaffi þann 17. október síðastliðin þar sem hún var að borða. Lögreglumaðurinn sem er með nálgunarbann gegn Sunnu sat þar að snæðingi í hádeginu þegar hún gekk inn með vinkonu sinni og fengu þær sér einnig að borða. Sunna segist ekki hafa séð hann fyrr en hún hafi verið búin að fá sér mat á bakka. Hún segist hafa passað sig að snúa frá honum þar sem hún sat og að horfa ekki á hann né veita honum athygli. „Hann var yesterdays news á þessum tímapunkti. Ég var stressuð yfir því að hann var þarna en ég var ekki að fara að kasta matarbakkanum frá mér og hlaupa út.“ Lögregluþjónninn hefur þrisvar sinnum fengið nálgunarbann gegn Sunnu.Færðu sig nær vegna opinna dyra Sunna sagði frá því að viku áður hefði hún setið inni á Múlakaffi þegar lögregluþjónninn gekk inn. Hann sá hana en fékk sér að borða og sátu þau þar bæði inni þar til hún fór. Því hafi hún ákveðið að hætta ekki við að borða, sest niður og snúið baki í lögregluþjóninn. Hún og vinkona hennar færðu sig þó nær lögreglumanninum og segir Sunna að það hafi þær gert til að vera nær opnum dyrum. Skömmu seinna fór lögregluþjónninn en hann sat þó út í lögreglubíl um stund. „Allt í einu hópast fullt af löggubílum þarna á ljósum. Yfirleitt þegar fólk er að borða á Múlakaffi kemur það ekki á blikkandi ljósum,“ sagði Sunna. Hún sagðist ekki hafa gert sér í hugarlund að hann hefði farið út í bíl til að „skipuleggja eitthvað“.Stormar foringinn inn „Svo stormar hann inn, foringinn í hópnum, dinglandi handjárnum.“ Hún segir að lögregluþjónninn hafi tilkynnt henni að hún væri handtekin fyrir brot á nálgunarbanni og vinkona hennar hefði einnig verið handtekinn sem vitni. „Þetta var svo kjánalegt. Ég skildi þetta ekki. Ég sit stundum heima og hlæ að þessu. Hann leikur sér að því þarna að snúa upp á mig fyrir gamalt grín. Svo bjó hann til ný lög sem ég held að séu ekki til. Að handtaka vitni.“ Hún sagði lögregluþjóninn hafa „fengið sitt show á Múlakaffi. Hann er með nálgunarbann en er samt að handfjattla mig.“Áreitið átt sér langan aðdraganda Lögregluþjónninn sagði fyrir dómnum að hann hefði sjálfur framkvæmt handtökuna ásamt öðrum. Hann sagði að engin orð hefðu farið þeirra á milli en hún hefði vitað af honum. Hann taldi að Sunna hefði átt að yfirgefa Múlakaffi þegar hún áttaði sig á að hann væri þarna inni. Hann sagði áreiti Sunnu hafa langan aðdraganda og það hafi byrjað í Kringlunni einu og hálfu ári áður en handtakan fór fram. Hann sagði þetta vera lokahnykkinn í löngu ferli. Hann sagði þetta hafa haft áhrif á sig og truflað einkalíf sitt. Þar að auki sagði hann að lögreglan byggi yfir fjölmörgum gögnum sem sýndu fram á að Sunna hefði áreitt hann, án þess að hann hafi tekið eftir því. Nefndi hann til dæmis að ljósmyndir væru til af henni á svölum við heimili hans. Verjandi Sunnu benti þó á að engin slík gögn væru hluti af þessu máli. Lögregluþjónninn tók þó fram að hann hefði ekki orðið fyrir áreiti frá Sunnu.
Tengdar fréttir Ákærð fyrir að segjast ætla að pynta framkvæmdastjóra Barnaverndar til dauða Sunna Guðrún Eaton, sem vakið hefur athygli fyrir myndbönd á YouTube, hefur verið ákærð af ríkissaksóknara. 8. júní 2015 20:36 Mest lesið Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Innlent Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Erlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Sækja slasaðan mann að Háafossi Innlent Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Innlent Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Innlent Rannsaka manndráp á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir Sækja slasaðan mann að Háafossi Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Árekstur á Suðurlandsbraut Nokkrir handteknir vegna mannsláts Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Rannsaka manndráp á Kársnesi Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Rósa Björk segir já Gangi Ísland í Evrópusambandið verði framsal ríkisvaldsins verulegt Muni hlusta og taka væntingar, þrár og áhyggjur til greina Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Hallalaus fjárlög ekki í spá fyrr en árið 2031: „Við höfum varað við þessu síðastliðið ár“ Ný skýrsla AGS og ummerki um snjóflóð á hafsbotni Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst „Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Brotaþolar fluttir á slysadeild og allar árásirnar til rannsóknar Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Evrópumálin tekin fyrir í Sprengisandi Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Sjá meira
Ákærð fyrir að segjast ætla að pynta framkvæmdastjóra Barnaverndar til dauða Sunna Guðrún Eaton, sem vakið hefur athygli fyrir myndbönd á YouTube, hefur verið ákærð af ríkissaksóknara. 8. júní 2015 20:36