Bíó Paradís hefur fimm stundir til að safna 700 þúsund krónum Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 10. júní 2015 19:06 Guðjón Sigurðsson, formaður MND félagsins, gerði allt vitlaust þegar hann komst ekki í útskrift dóttur sinnar til að vekja athygli á vandamálinu.
Söfnun kvikmyndahússins Bíó Paradís fyrir bættu hjólastólaaðgengi lýkur á miðnætti. Það eru því um það bil fimm tímar til stefnu en enn á eftir að safna fyrir tæplega fimmtán prósent þeirrar upphæðar sem lagt var upp með. Lágmarksupphæðin sem safna þarf er tæplega 4,5 milljón króna en rúmlega 3,8 milljónir hafa safnast nú þegar og því hafa fjölmargir lagt hönd á plóg. En betur má ef duga skal þar sem reglur Karolina Fund virka þannig að ef lágmarkið næst ekki, í þessu tilfelli 4,5 milljónir króna, þá fær Bíó Paradís ekki krónu.Sjá einnig: Bíó Paradís selur árskort til tíu ára fyrir bættu aðgengi Kvikmyndahúsið hefur verið gagnrýnt fyrir slæmt aðgengi fyrir fatlaða en aðgengi fyrir fólk í hjólastól er ábótavant í húsinu. Guðjón Sigurðsson, formaður MND félagsins, komst ekki í útskrift dóttur sinnar úr Kvikmyndaskólanum sem haldin var í húsinu á dögunum þar sem hann komst ekki inn í salinn.Sjá einnig: Komst ekki í útskrift dóttur sinnar útaf slæmu hjólastólaaðgengi „Við höfum vitað það lengi að við þyrftum að gera eitthvað róttækt í þessu en vissum reyndar ekki að breytingarnar myndu kosta svona mikið,“ sagði Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Bíó Paradísar, í samtali við Stöð 2 í vikunni. „Við vorum fyrstu árin að koma okkur upp almennilegum sýningarbúnaði og tryggja grundvöll bíósins. Núna þegar við erum búin að því, þá gerum við okkur auðvitað grein fyrir því að auðvitað þarf þetta bíó að vera fyrir alla.” Hægt er að leggja söfnuninni lið hér. Uppfært 19.26: Nú vantar einungis tíu prósent til þess að kvikmyndahúsið nái lágmarksfjárhæð. Uppfært 20.07: Nú hafa safnast 96 prósent af þeirri upphæð sem þarf til að söfnunin nái takmarkinu. Uppfært 20.59:Takmarkinu hefur verið náð.
Mest lesið Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Innlent Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Innlent Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Erlent „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Innlent Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Erlent Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Innlent „Við getum gert það sem við viljum“ Erlent „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Innlent Fleiri fréttir Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Rannsóknaskipin gera hlé á loðnuleit vegna óveðurs Viðreisn býður fram undir merkjum Samfylkingar Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Sjá meira