Bruni á Selfossi: Slökkvistarfi að ljúka Jóhann Óli Eiðsson skrifar 7. júní 2015 18:51 Mikinn reyk leggur frá eldinum. vísir/magnús
Grunur leikur á um íkveikju hafi verið að ræða þegar eldur braust út við plastsmiðjuna Set á Selfossi á sjöunda tímanum í kvöld. Eldurinn blossaði upp á geymslulager fyrir fullunnar vörur fjarri framleiðslubyggingum. Allt tiltækt slökkvilið frá Selfossi og Hveragerði var kallað út og náðist að ráða niðurlögum eldsins upp úr klukkan níu. „Að öllum líkindum, eins og staðan er núna, hefur einhver verið að fikta með eldspýtur,“ segir Kristján Einarsson, slökkviliðsstjóri hjá Brunavörnum Árborgar. Töluvert tjón hlaust af eldinum og mikil framleiðsla varð eldinum að bráð. Mikinn reyk lagði frá svæðinu og þau hús sem fengu mestan reyk á sig voru rýmd. Starfsfólk Rauða krossins og björgunarsveita opnuðu fjöldahjálparstöð í Vallaskóla og var á annan tug fólks sem færði sér hana í nyt. Kristján vill einnig biðla til fólks sem finnur fyrir einkennum reykeitrunar, þó ekki sé nema vottur, að láta líta á það. Í tilkynningu frá Set, sem send var fjölmiðlum fyrir skemmstu, kemur fram að aðstandendur fyrirtækisins harmi atburðinn og leggja áherslu á að mikið hefur verið unnið að umbótum og bættu verklagi við starfsemina með tilliti til öryggismála. Set ehf vill koma þökkum til Brunavarna Árnessýslu og annara slökkviliða sem komu að aðgerðunum í kvöld. Set vill einnig koma afsökunarbeiðni á framfæri við þá bæjarbúa sem kunna að hafa orðið fyrir óþægindum af þessari uppákomu.Fréttin var síðast uppfærð kl. 21.45.Frá vettvangi.vísir/vilhelmHverfi næst brunanum verða mögulega rýmd sökum reyks.mynd/yngvi þór jóhannssonHér að neðan má sjá myndband sem Sigþór Constantin Jóhannsson sendi fréttastofu.
Mest lesið Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Erlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Erlent Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Innlent „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Innlent ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Innlent Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Innlent Aðallega „karlar að drepa aðra karla“ Innlent Fleiri fréttir Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni „Við sem samfélag þurfum að standa keik á móti þessu“ Aðallega „karlar að drepa aðra karla“ „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Í gæsluvarðhaldi en segist einungis hafa verið bílstjóri Billy Long kominn á klakann Helga Lára Haarde aðstoðar Hildi Fólksfjöldi á Hellissandi tífaldast Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Pysjutímabilið formlega hafið Bílstjóri ákærður fyrir að nauðga fatlaðri konu Bein útsending: Umdeildur fundur Baudenbacher Neitaði að borga og sló vagnstjórann Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Huga þurfi líka að heimferðinni Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Bónus lokað vegna eldsvoða um helgina Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Báturinn fannst eftir nokkuð umfangsmikla leit Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst? Þrír handteknir á Þingvöllum Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? TF-SIF grennslast fyrir um skemmtibát á Sundunum Aukinn viðbúnaður vegna almyrkva á Reykjanesi Sjá meira