Lofað allt að hálfri milljón fyrir að hóta fulltrúa lögreglustjórans Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 20. apríl 2015 17:00 Árásin átti sér stað aðfaranótt 12. nóvember í fyrra. Vísir
Karlmenn á þrítugs- og fertugsaldri eru sakaðir um að hafa að undirlagi karlmanns á sextugsaldri haft í hótunum við fulltrúa lögreglustjórans á Akureyri og kveikt í bíl hans með bensínsprengju í nóvember síðastliðnum. Þetta kemur fram í ákærunni sem fréttastofa hefur undir höndum. Maðurinn á sextugsaldri er sagður hafa verið ósáttur við afgreiðslu fulltrúans, Eyþórs Þorbergssonar sem sækir flest mál fyrir hönd lögreglunnar í Héraðsdómi Norðurlands eystra, í sakamálum gegn honum. Samkvæmt heimildum Vísis mun umræddur maður meðal annars hafa verið sviptur ökuréttindum fyrir umferðarlagabrot.Huldi andlit og hélt vopnaður að heimili fulltrúa lögreglu Í ákærunni segir að yngri mennirnir tveir hafi að undirlagi þess eldri farið að heimili Eyþórs á Akureyri aðfaranótt miðvikudagsins 12. nóvember í því skyni að beita hann ofbeldi. Hafi þeim verið heitið fjárhæð á bilinu 300-500 þúsund krónum fyrir verkið. Sá yngsti ók þeim á fertugsaldri að heimili Eyþórs. Sá huldi andlit sitt og gekk vopnaður skapti heim til Eyþórs og knúði dyra. Er Eyþór opnaði dyrnar hafi maðurinn slegið hann í handlegginn. Eyþór hafi tekist að loka hurðinni og læsa. Á sama tíma stóð sá á þrítugsaldri vaktina við lögreglustöðin á Akureyri, tilbúinn að láta vita ef lögregla yrði kölluð út. Sótti hann svo árásarmanninn og óku þeir á brott.Kveiktu í bíl með bensínsprengju Morguninn eftir héldu þeir til mannsins á sextugsaldri í því skyni að fá greitt fyrir verkið Keyptu þeir meðal annars vörur fyrir rúmlega 56 þúsund krónur síðar um daginn með debetkorti þess eldri. Þá fengu þeir samtals 50 þúsund krónur sem uppígreiðslu fyrir árásina. Eyþór hlaut mar á vinstri framhandlegg og litla fingri vinstri handar. Mennirnir tveir eru svo sakaðir um að hafa nokkrum klukkustundum eftir árásina lagt eld að bifreið í eigu Eyþórs sem lagt var fyrir utan heimili hans. Helltu þeir bensíni yfir bifreiðina og kveiktu svo í tuskum sem þeir höfðu stungið í glerflösku með bensíni. Köstuðu þeir flöskunum í bifreiðina og ollu með því eldsvoða sem hafði almannahættu í för með sér eins og segir í ákærunni. Mikið eignartjón hafi orðið á bifreiðinni en eldurinn var slökktur af lögreglu og slökkviliði.
Tengdar fréttir Þrír ákærðir í bensínsprengjumálinu á Akureyri Köstuðu bensínsprengju á bíl starfsmanna lögreglustjórans á Akureyri og ógnuðu honum með hnífi. 26. mars 2015 13:10 Sérsveitarmenn vakta hús fulltrúa sýslumanns Molotov kokteilnum var kastað í bíl starfsmanns lögreglu norðan heiða. 13. nóvember 2014 10:12 Molotov-málið: Rannsaka hvort einhver hafi greitt fyrir árásina Búið er að yfirheyra fjölmarga aðila í tengslum við málið. 18. nóvember 2014 13:16 Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Sjá meira
Þrír ákærðir í bensínsprengjumálinu á Akureyri Köstuðu bensínsprengju á bíl starfsmanna lögreglustjórans á Akureyri og ógnuðu honum með hnífi. 26. mars 2015 13:10
Sérsveitarmenn vakta hús fulltrúa sýslumanns Molotov kokteilnum var kastað í bíl starfsmanns lögreglu norðan heiða. 13. nóvember 2014 10:12
Molotov-málið: Rannsaka hvort einhver hafi greitt fyrir árásina Búið er að yfirheyra fjölmarga aðila í tengslum við málið. 18. nóvember 2014 13:16