Ísland í dag: Sagði frá kynferðisofbeldi á leikskóla sínum en málið fellt niður Bjarki Ármannsson skrifar 28. apríl 2015 21:09
Árið 2002 lýsti hin næstum því fjögurra ára Birta Ósk Friðbertsdóttir því fyrir foreldrum sínum hvernig starfsmaður á leikskóla hennar beitti hana kynferðislegu ofbeldi. Þrátt fyrir greinargóðar lýsingar hennar á því sem gerðist þótti vanta sannanir og málið var látið niður falla. Birta er nú sextán ára og hún sagði sögu sína í þætti kvöldsins af Íslandi í dag.Anna María Halldórsdóttir, móðir Birtu.Vísir„Helvíti á jörð“ „Ég held að þetta sé án efa það erfiðasta sem ég hef gengið í gegnum,“ segir Anna María Halldórsdóttir, móðir Birtu, í fréttaskýringaþættinum Kompási á Stöð 2 árið 2008. „Ég held að ég geti sagt alveg með hreinni samvisku að þetta er helvíti á jörð.“ Fram kom í þeim þætti að Birta sagði móður sinni frá atburðunum við kvöldmatarborðið. „Við erum að fara að byrja að borða þegar hún byrjar bara að hágráta og segist alls ekki vilja fara meira í leikskólann. Við verðum hissa og ég spyr hvað sé að. Þá lýsir hún því hvernig henni er misþyrmt af þessum starfsmanni á mjög slæman hátt, kynferðislega.“ Starfsmaðurinn sem um ræðir hafði verið einn á vakt með Birtu milli eitt og fimm þennan dag. Anna María hafði samband við leikskólastjórann strax næsta dag og hann ákvað að yfirheyra meintan geranda sjálfur. „Ég segi, er þetta það sem er gert?“ segir Anna María. „Hvað er í gangi? Ég hringi í Barnahús og fæ þar viðtal við konu, sem ég álit að sé sú eina í öllu kerfinu sem hefur reynst mér vel.“ Anna María hafði samband við leikskólastjórann og spurði hvort hann gerði sér grein fyrir því að hann væri að brjóta lög með því að tilkynna ekki um málið. Það hafi verið síðustu samskiptin þeirra á milli. Stuttu síðar var Birtu úthlutaður réttargæslumaður og öll fjölskyldan yfirheyrð. „Við kærum og hann neitar,“ segir Anna María. „Hann er tekinn þrisvar sinnum í yfirheyrslu og neitar staðfastlega.“ Málið var látið niður falla vegna þess að þótti vanta sannanir. Framburður Birtu fyrir skýrslutökum var þó afdráttarlaus og skýr að sögn móður hennar, sem segir fjögurra ára barn ekki hafa hugarflug í að skálda svona frásögn.Birta er í dag sextán ára og nemandi við Verslunarskóla Íslands.VísirSegir ósanngjarnt hvernig tekið var á máli sínu Birta er í dag sextán ára og nemandi við Verslunarskóla Íslands. „Þetta var rosalega erfitt fyrst en svo náði ég að vinna úr þessu með foreldrum mínum og systkinum,“ segir Birta í Íslandi í dag í kvöld. Aðspurð hvort hún muni mikið eftir atburðinum segir lykt og liti og þvíumlíkt sitja eftir í undirmeðvitundinni. „Ég man rosalega vel eftir hárlitnum á gerandanum og hvernig mér leið á þessum tíma,“ segir hún. „Ef mér er kalt og ég er ein einhversstaðar úti, þá hugsa ég um þetta. Það minnir mig á þetta.“ Hún segir ósanngjarnt hvernig tekið er á kynferðisofbeldismálum hér á Íslandi. „Ég var mjög skýr í skýrslutöku,“ segir Birta, en í skýrslu sem hún veitti í Barnahúsi í nóvember árið 2002 lýsir hún því meðal annars hvernig maðurinn hafi „potað í pjölluna“ á henni „með typpinu.“ „Ég sagði hreint út frá þessu. Þess vegna tel ég ekki hafa verið rétt unnið úr þessu máli.“Sjá má viðtal Íslands í dag við Birtu í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.
Mest lesið Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Innlent Fleiri fréttir Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan „Tölum svolítið bara um það sem við sjáum á samfélagsmiðlum í bekknum“ Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Sjá meira