Bæði bjartsýn á að ná kjöri Heimir Már Pétursson skrifar 14. apríl 2015 12:15 Jón Atli Benediktsson og Guðrún Nordal keppa um stöðu rektors H.Í. í annarri umferð og telja sig bæði eiga möguleika á að ná kjöri. vísir/pjetur
Jón Atli Benediktsson, sem hlaut flest atkvæði í fyrri umferð í rektorskjöri við Háskóla Íslands, er bjartsýnn á að ná kjöri í seinni umferðinni eftir viku. Guðrún Nordal sem hlaut næst flest atkvæði er telur sig eiga ágæta möguleika á að ná kjöri en bæði séu þau staðráðin í að vinna vel fyrir Háskólann. Jón Atli Benediktsson aðstoðarrektor vísinda og kennslu við Háskóla Íslands og prófessor í rafmagns- og tölvuverkfræði við skólann hlaut 48,9 prósent atkvæða í rektorskjöri en úrslitin voru ljós í gær. Guðrún Nordal forstöðumaður stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hlaut 39,4 prósent atkvæða.Kom Jóni Atla ekki á óvart Þar sem hvorugt þeirra hlaut meira en helming atkvæða þarf að kjósa á milli þeirra tveggja aftur. En þriðji frambjóðandinn, Einar Steingrímsson hlaut 9,7 prósent atkvæða. Jón Atli segist fara óhræddur í seinni umferðina. „Og ég þakka kærlega fyrir mikinn stuðning. Það er nú yfirleitt þannig í rektorskosningum að það er farið í tvær umferðir og það kemur mér ekki á óvart að það hafi gerst í þetta skipti líka,“ segir Jón Atli. Hann sé bjartsýnn á árangur í seinnin umferðinni en það sé heilmikil vinna framundan fram að kosningunni í næstu viku og hann leggi glaður í þá vinnu. „Ég legg áherslu á það að Háskóli Íslands er alhliða háskóli sem er sterkur rannsóknarháskóli en hefur miklar skyldur við íslenskt samfélag. Það þarf að fara í ýmsar breytingar og ég tel að mín reynsla og þekking á háskólastarfi muni nýtast mjög vel í því breytingaferli,“ segir Jón Atli.Meirihlutinn með Guðrúnu og Einari Guðrún Nordal segist spennt fyrir seinni umferðina í rektorskjörinu og þakklát fyrir þann mikla stuðning sem hún hafi fengið, eða 39,4 prósent eins og áður sagði. Hún telji sig eiga ágætan möguleika á að ná kjöri. „Já það er allt opið. Við sjáum að meirihlutinn er með mér og Einari þannig að við sjáum að það er allt opið í þessu. Það verður bara gaman að sjá hvernig næstu dagar spilast út,“ segir Guðrún. Keppnin milli hennar og Jóns Atla verði bróðurleg enda bæði staðráðin að vinna vel fyrir Háskólann. En þau koma úr nokkuð ólíkum áttum innan háskólans, hún úr hugvísundum og hann raunvísindum. „Ég held að við verðum alltaf að hugsa breitt yfir skólann en auðvitað komum við úr sitthvorri áttinni varðandi okkar vísindi. En ég hef líka starfað mikið utan skólans á síðustu árum. Bæði innan Árnastofnunar og líka innan Vísinda- og tækniráðs og vísindageirans. Þannig að við komum með auðvitað með okkar ólíka bakgrunn að þessu starfi, hvort okkar sem verður fyrir valinu,“ segir Guðrún Nordal.
Tengdar fréttir Kennir sex námskeið en fær ekki að greiða atkvæði í rektorskjöri Katrín Lilja Sigurðardóttir, stundakennari við Háskóla Íslands, segist ósátt við réttindaleysi stundakennara, sem fái ekki að kjósa um rektor, ekki árshátíð, sumarfrí eða mannsæmandi laun. 13. apríl 2015 13:00 Rektorskjör í HÍ: Ræða Jóns Atla Benediktssonar Ég þakka Stúdentaráði kærlega fyrir þennan málfund. Síðustu vikur hafa verið mjög skemmtilegar og lærdómsríkar. 11. apríl 2015 14:29 Kosið á ný milli Jóns Atla og Guðrúnar Enginn frambjóðandi í rektorskjöri hlaut helming atkvæða. 13. apríl 2015 21:12 Rektorskjör í HÍ: Ræða Guðrúnar Nordal Ég legg áherslu á að allar greinar búi við sambærileg skilyrði innan skólans og að þið stúdentar hafi jafna aðstöðu hvar sem þið eruð í skólanum. 10. apríl 2015 19:11 Rektorskjör í HÍ: Ræða Einars Steingrímssonar Það er rétt að taka fram í upphafi að ástæða þess að ég er ekki hér í dag er að Stúdentaráð hætti við að hafa þennan fund þegar ég var síðast á landinu -- til að hliðra til fyrir öðrum frambjóðanda. 8. apríl 2015 14:47 Mest lesið Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Innlent Skotárás við Álaborg Erlent Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Veður Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Innlent „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Innlent Fleiri fréttir Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Sjá meira
Kennir sex námskeið en fær ekki að greiða atkvæði í rektorskjöri Katrín Lilja Sigurðardóttir, stundakennari við Háskóla Íslands, segist ósátt við réttindaleysi stundakennara, sem fái ekki að kjósa um rektor, ekki árshátíð, sumarfrí eða mannsæmandi laun. 13. apríl 2015 13:00
Rektorskjör í HÍ: Ræða Jóns Atla Benediktssonar Ég þakka Stúdentaráði kærlega fyrir þennan málfund. Síðustu vikur hafa verið mjög skemmtilegar og lærdómsríkar. 11. apríl 2015 14:29
Kosið á ný milli Jóns Atla og Guðrúnar Enginn frambjóðandi í rektorskjöri hlaut helming atkvæða. 13. apríl 2015 21:12
Rektorskjör í HÍ: Ræða Guðrúnar Nordal Ég legg áherslu á að allar greinar búi við sambærileg skilyrði innan skólans og að þið stúdentar hafi jafna aðstöðu hvar sem þið eruð í skólanum. 10. apríl 2015 19:11
Rektorskjör í HÍ: Ræða Einars Steingrímssonar Það er rétt að taka fram í upphafi að ástæða þess að ég er ekki hér í dag er að Stúdentaráð hætti við að hafa þennan fund þegar ég var síðast á landinu -- til að hliðra til fyrir öðrum frambjóðanda. 8. apríl 2015 14:47