Steingrímur J og Jón Bjarna hafa fátt eitt með aukna þorskgengd að gera Jakob Bjarnar skrifar 16. apríl 2015 10:49 Annað hvort hefur Árni gleymt þeim Steingrími og Jóni, eða hann telur ekki vert að nefna þá í þessu samhengi.
Árni Mathiesen dýralæknir og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra Sjálfstæðisflokksins, sem nú starfar í Róm, rýndi í jákvæðar tölur sem Hafrannsóknarstofnun hefur sent frá sér eftir vorrallið. Þar kemur meðal annars fram að þorskstofninn er að eflast. „Það eru glæsilegar vístölur sem koma út úr vorrallinu hjá Hafró í ár,” segir Árni á Facebooksíðu sinni og vill ekki síst þakka sér og sínum mönnum þetta. „Það er líka mjög uppörvandi að stjórnunaraðgerðir í ráðherratíð Þorsteins, í minni tíð og í tíð Einars sýna allar sjáanlegan árangur í hækkun á stofnvísitölu þorsks. Þetta er auðvitað merki um að grundvallar prinsipin sem hafa verið þróuð hjá okkur alveg frá því í tíð Halldórs eru í lagi til lengri tíma séð. Markmiðið um að fjölga í eldri árgöngum og þar með stækka bæði hrygningarstofninn sem heild og einstaklingana sem slíka er líka augljóslega að nást,“ segir Árni. Hann nefnir þarna til sögunnar sjávarútvegsráðherra allt frá tíð Halldórs Ásgrímssonar, fyrrverandi formanns Framsóknarflokksins, sem kom á hinu umdeilda kvótakerfi: Þorstein Pálsson, sig og Einar K. Guðfinnsson. Og Árni heldur áfram að greina stöðuna. „Það sem vantar þó upp á er meiri stöðugleiki í nýliðun sem sést kannski ekki augljóslega nema ef litið er yfir lengri tíma, kannski mjög langan tíma. Gullkarfinn er líka athyglisverður því hann sýnist vera að ná sér á strik án þess að það sé stór árgangur að koma inn. Annað er auðvitað eitthvað upp og niður eins og gengur með minni stofna en þó mun meira upp. Gott mál í heildina. Jóhann Sigurjónsson og hans fólk á Hafró fyrr og síðar getur verið sátt, sem og Sigurður Ingi [Jóhannsson] ráðherra og dýralæknir.“ Árni nefnir sem sagt til sögunnar sjávarútvegsráðherra allt að Sigurði Inga, sem nú situr í þeim stóli, en stekkur yfir þá Steingrím J. Sigfússon og Jón Bjarnason, sem vissulega voru einnig sjávarútvegsráðherrar. Annað hvort hefur Árni gleymt því eða hann telur ekki vert að þakka þeim eflingu þorskstofnsins neitt sérstaklega.
Tengdar fréttir Þorskstofninn ekki stærri í þrjátíu ár Stofnvísitala þorsks tvöfalt hærri en árin 2002-2008. 15. apríl 2015 14:31 Mest lesið Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Steingrímur segir nei vegna reynslu af fyrri aðildarviðræðum Innlent Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Erlent Rafflugvél sem gæti hentað Íslandi flýgur í fyrsta sinn Innlent Mangione sagður ætla að játa Erlent Forskot Já-hliðarinnar mælist minna Innlent Sé verið að senda röng skilaboð til „kaldrifjaðra morðingja“ Innlent Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Erlent Fleiri fréttir Steingrímur segir nei vegna reynslu af fyrri aðildarviðræðum Rafflugvél sem gæti hentað Íslandi flýgur í fyrsta sinn Ökumenn beðnir um að sýna aðgát vegna fýlsunga Frá hrifningu til vonbrigða: Svona upplifðu borgarbúar almyrkvann Rafmagnslaust í Mosfellsbæ og Grafarvogi Sé verið að senda röng skilaboð til „kaldrifjaðra morðingja“ Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Forskot Já-hliðarinnar mælist minna ESB-málin í brennidepli og uppgjör eftir almyrkvann Einn handtekinn vegna gruns um líkamsárás og hótanir „Ég get ekki orða bundist“ Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Bein útsending: Málstofa og sýning um íslensk námsgögn Umferð um Flókalund 430 prósentum meiri en vanalega Eigendur Santé ákærðir fyrir vínsölu og peningaþvætti Allir í skýjunum með almyrkvann: Himnanir opnuðust á hárréttum tíma Greiddu atkvæði gegn ráðningu nýs bæjarstjóra Fjallabyggðar Gott að vera temmilega tortrygginn Sjá-liðar þekkjast boðið sem Þorgerður afþakkaði Óraði ekki fyrir að ákvæðinu yrði beitt til að sleppa morðingja Eftirköst almyrkvans og Rauðagerðismorðinginn laus úr haldi Fluttu veikan kajak-ferðalang Sólmyrkvaröðin á Keflavíkurflugvelli lengri en elstu menn muna Alin upp við að skrifa frekar skilaboð en að hringja „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Telur mikilvægi Viðreisnar aukast ef viðræðum verður hafnað Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Sjá meira
Þorskstofninn ekki stærri í þrjátíu ár Stofnvísitala þorsks tvöfalt hærri en árin 2002-2008. 15. apríl 2015 14:31