Afleitt að ekki sé samningafundur um helgina Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 18. apríl 2015 12:29 Páll Halldórsson formaður Bandalags háskólamanna. MYND/Vísir
Formaður Bandalags háskólamanna gagnrýnir að enginn samningafundur sé fyrirhugaður í kjaradeilu BHM og ríkisins um helgina. Mikið ber enn í milli og lítið sem ekkert hefur þokast í samkomulagsátt. Tæpur hálfur mánuður er síðan að verkfallsaðgerðir BHM hófust. Ríflega fimm hundruð félagsmenn BHM hófu verkfallsaðgerðir sínar 7. apríl síðastliðinn. Þetta eru geislafræðingar, náttúrufræðingar, lífeindafræðingar og ljósmæður sem starfa á Landspítalanum. Þá lögðu lögfræðingar hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu einnig niður störf. Síðasti samningafundur var á fimmtudaginn og verður næsti fundur ekki fyrr en eftir helgi. Páll Halldórsson formaður BHM gagnrýnir að enginn samingafundur sé fyrirhugaður um helgina. „Okkur finnst það alveg afleitt. Vegna þess að við teljum það mjög mikilvægt að það sé unnið hörðum höndum að því að leysa þessa deilu en ríkið var ekki tilbúið til að mæta fyrr en á mánudag,“ segir Páll. Hann segir lítið hafa þokast í samkomulagsátt undanfarna daga. „Það má eiginlega segja að staðan sé alveg óbreytt frá því sem verið hefur fram til þessa. Ríkið er ekki tilbúið að bjóða meira en þessi 3,5% og meðan svo er þá hreyfumst við ekki neitt,“ segir Páll. Páll segir enn mikinn hug í sínu fólki. „Það er engin bilbugur á okkur,“ segir Páll. Á mánudaginn hefjast frekari verkfallsaðgerðir BHM. „Það er bæði Fjársýslan og Matvælastofnun. Fjársýslan fer í tímabundið verkfall til 8. maí en Matvælastofnun í ótímabundið verkfall,“ segir Páll Halldórsson.
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Sjá meira