Fór í afneitun þegar sonurinn greindist með einhverfu Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 2. apríl 2015 21:00
Móðir tveggja einhverfra drengja segist hafa farið í mikla afneitun þegar eldri sonur hennar greindist með einhverfu. Ranghugmyndir hafi gert það að verkum að hún átti bágt með að trúa því að glaðlyndi sonur hennar væri einhverfur. Hún hvetur til upplýstrar umræðu á degi einhverfra sem er í dag. Bræðurnir Jón Ágúst og Viktor Ingi eru fimm og átta ára en þeir eru báðir með dæmigerða einhverfu. Árið 2010 fluttu þeir með foreldrum sínum til Danmerkur. Jón Ágúst var þá þriggja og hálfs árs. Fjórum mánuðum eftir að þau komuna þangað bentu leikskólakennarnir foreldrum hans á að hann væri varla farinn að segja stakt orð á dönsku. „Okkur var ráðlagt að fá hérna svona sérfræðinga til að kíkja á hann og við bara jú endilega en síðan þegar að greiningin kom að hann væri með dæmigerða einhverfu, á einhverfurófi, þá í raun og veru var það gríðarlegt áfall fyrir okkur. Við í raun og veru bara fórum strax í mikla afneitun“, segir Ragnhildur Ágústsdóttir. Hún segir þau hjónin ekki hafa trúað því að hann væri einhverfur þar sem hann passaði ekki við þá ímynd sem þau höfðu af einhverfum. „Hann gæti ekki verið einhverfur af því að hann væri svo mikil kelirófa og væri svo glaður. Við vorum með einhverjar mjög svona miklar ranghugmyndir í raun og veru hvað einhverfa væri, “ segir Ragnhildur. Ragnhildur segir fyrstu viðbrögðin hafa verið þau að ætla að afsanna að Jón Ágúst væri einhverfur. „ Þegar við förum síðan og lesum okkur til bara á netinu og svona þá í raun og veru bregður okkur svolítið í brún af því að ekki aðeins var verið að lýsa eldri stráknum okkar heldur var bara hvað eftir annað koma atriði þarna sem að lýstu yngri guttanum okkar alveg í hnotskurn. Þannig að þarna í raun og veru áttuðum við okkur á því að þeir eru báðir einhverfir, “ segir Ragnhildur. Hún segir drengina sína mjög ólíka og hafa kennt sér margt líkt og umburðarlyndi. Styrktarfélag barna með einhverfu stendur nú í annað sinn fyrir styrktar- og vitundarátakinu Blár apríl. Ragnhildur segir mikilvægt að upplýst umræða fari fram um einhverfu. Föstudaginn 10. apríl eru landsmenn meðal annars hvattir til að klæðast bláu til að vekja athygli á málefnum einhverfra. „Það eru held ég miklu fleiri sem að hafa einhverja beina snertingu við einhverfu heldur en kannski margir halda og mjög víða og örugglega á flestum vinnustöðum einhver eða einhverjir sem að tengjast einhverjum með beinum eða óbeinum hætti, “ segir Ragnhildur Ágústsdóttir.
Mest lesið Hæstiréttur staðfestir dóm yfir móður sem myrti son sinn Innlent Upplausn á Vopnafirði: Starfslok sveitarstjórans, oddviti hættir og rifist á fundum Innlent Leita fórnarlamba fransks barnaníðings sem braut á börnum um allan heim Erlent Talin hafa myrt móður sína og stjúpbróður fyrir skotárásina Erlent Starfsmaður smitaður af berklum: „Þetta var alveg frekar mikið sjokk“ Innlent Ákærður fyrir líkamsárás en lýsir yfir sakleysi Innlent Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur Innlent Ársæll í veikindaleyfi: „Mjög skrýtið að fá sleggju ríkisstjórnar í andlitið“ Innlent „Sátt og samlyndi“ um skyndileg starfslok varaslökkviliðsstjóra Innlent Gabríel Boama og yngri bróðir hans réðust á tvær konur og bróðirinn stakk pilt Innlent Fleiri fréttir Upplausn á Vopnafirði: Starfslok sveitarstjórans, oddviti hættir og rifist á fundum Menntaverðlaun Suðurlands fóru á Hellu Hæstiréttur staðfestir dóm yfir móður sem myrti son sinn Lýsa ófremdarástandi og krefjast aðgerða strax Vinna að því að fækka sjúklingum og flytja annað Mikilvægi Íslands eykst með nýrri aðgerð NATO á norðurslóðum Starfsmaður smitaður af berklum: „Þetta var alveg frekar mikið sjokk“ Fjöldi síma kom á óvart Neyðaróp starfsmanna og leynisímar Réðust í húsleit í leit að þýfi Gripinn með þýfi í fórum sínum og sparkað úr landi Kynnir drög að aðgerðaáætlun til að bregðast við offitu Íslendinga Ársæll í veikindaleyfi: „Mjög skrýtið að fá sleggju ríkisstjórnar í andlitið“ Ákærður fyrir líkamsárás en lýsir yfir sakleysi Ólína fyllir í skarð Margrétar á Bifröst „Sátt og samlyndi“ um skyndileg starfslok varaslökkviliðsstjóra Starfsfólk bráðamóttöku óttist um heilsu sína og öryggi Einfalt að stýra glæpahring frá allt öðru landi Vill að virðisaukaskattur á barnavörur verði látinn fjúka Starfsfólk á bráðamóttöku segist óttast um öryggi sitt Afplánaði of lengi en fær ekki krónu Hæstiréttur fjallar um hryðjuverkamálið svokallaða í dag Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar „Aðferðafræðin við þetta mál er alveg galin“ Úkraínumenn á Íslandi minntust Kjartans Sævars Lægðirnar nái ekki til landsins Réðst á fyrrverandi kærasta sinn eftir sambandsslit Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Sjá meira