Of snemmt að afskrifa sumarið Jakob Bjarnar skrifar 8. apríl 2015 10:07 Veðurfræðingarnir Haraldur og Einar segja ýmislegt að frétta af veðri: veturinn er sá kaldasti í 15 ár og sumarið í fyrra það besta í Grímsey í 150 ár. Vísir/vilhelm
Veturinn hefur verið leiðinlegur á Íslandi, vindasamur með afbrigðum. Og þegar við bætist að undanfarin tvö sumur hafa varla verið sem heitið getur þá er farið að reyna verulega á þolrif þeirra sem þrá gott veður. Reyndar er örvænting að grípa um sig en Vísir greindi frá því fyrir páska að ferðir til útlanda seljast sem aldrei fyrr. Fólk var að flýja veðrið unnvörpum. Blaðamaður Vísis ræddi áhyggjufullur við tvo veðurfræðinga um stöðu mála, ástand og horfur. Þeir gáfu reyndar ekkert fyrir það að síðasta sumar hafi verið ömurlegt. „Já, kannski á suð-vesturhorninu. Við vorum með dumbung og svalt loft. En, fólk var ekkert óánægt fyrir norðan og austan. Bæði í fyrra og hitteðfyrra,“ segir Haraldur Eiríksson veðurfræðingur á Veðurstofunni. Og Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur, sem einmitt hefur stundað rannsóknir sem snúa að veðurfari yfir lengri tíma, blæs einnig á þennan barlóm: „Það var ágætt sumar í fyrra. Sunnan og suðvestan átt var ríkjandi og góðu veðri því ekki jafnskipt milli landsmanna. En, ég vil benda á að það var það besta í 150 ár í Grímsey.“Norskar veðuræsifréttirFrétt í Verdens Gang í síðustu viku vakti nokkra athygli, þar sem meðal annars greinir frá því að Golfstraumurinn sé að svíkja okkur vegna þess að kalt ferskvatn sem streymir frá bráðnandi jöklum beinir honum frá norðanslóðum. Golfstraumurinn, þetta náttúrufyrirbæri, er sem gerir að hér er lífvænlegt. Niðurstaðan er sú að það verðið lítið og lélegt sumar á norðurslóðum þetta árið. Haraldur segir að þarna sé norska æsipressan að slá upp tíðindum. „Þeir eru ekki síður háðir Golfstraumnum en við. Mér hefur ekki fundist þessar árstíðarspár mjög áreiðanlegar. Sumir eru ósammála mér í því.“ Haraldur gefur ekki mikið fyrir þá frétt sem slíka, telur hæpið að byggja spá um hvernig sumarið verður á því og Einar einnig. „Verdens Gang eru að vísa í gamla spá, spá sem er orðin rúmlega mánaðargömul,“ segir Einar og bendir á að langtímaspár miðist við þriggja ára tímabil og næsta spá slík sé væntanleg eftir rúman mánuð. „Þessar spár þær hanga á sjávarhitanum hér við Norður Atlantshafið. Og hann hefur verið lágur, og þá er lágt hitastig. en þeir ná síður að spá fyrir um lægðabrautir og stöðu á helstu veðurkerfum. Og það er nú ekki síst það sem ræður veðráttunni frá degi til dag.“Kaldasti vetur í 15 árBáðir segja þeir að það eigi ekki að kalla á heimsendaspár þó geri eitt rigningasumar eins og var í fyrra. Ekki er þar með sagt að sumarið verði ömurlegt. Menn báru sig ekki betur 2010, í það minnsta ekki bændur, þegar allt var að skrælna. Einar segir reyndar að veturinn suðvestanlands sé sá kaldasti í 15 ár. „Já, sá kaldasti eftir að tók að hlýna að ráði um aldamótin. Hann er álíka og var veturinn 1999 til 2000. En, það sem þessi vetur er sérstakur fyrir er hversu vindasamur hann var, mikið um sunnan og suðvestan og vestanveður. Þau voru algeng,“ segir Einar. Lægðir voru bókstaflega í biðröðum. Hins vegar var ekki mikið um norðanveður. „Langa kafla með kuldum úr norðri vantaði algerlega. Og því sérstakara fyrir vikið hvað veturinn var kaldur. Hann var í meðallagi ef við miðum við 1961 til 1990, en við miðum við þrjátíu ára meðaltal.“ Einar segir jafnframt að það hvað mönnum finnst um tíðarfarið sé þrátt fyrir allar tölur huglægt og miðast við aldarfar. Í gamla daga hefði þessi vetur farið í annála sem alveg sérstaklega leiðinlegur, en það hefði þá verið að teknu tilliti til þess hversu illa gekk að sækja sjóinn.“Veðrátta óvíða eins breytilegEn, hitamælingarnar eru alltaf þær sömu. Einar segir algerlega ótímabært að afskrifa sumarið. Þó kaldur sjór sé sunnan við landið núna er sjórinn umhverfis landið sæmilega hlýr en við vitum ekki til hvers þetta leiðir. „Þetta er fremur afbrigðileg veðrátta en líklegast að það verði innan alls þess breytileika sem við þekkjum. Veðráttan hér er mjög breytileg. Kerfið býður uppá það; frá því að vera kalt og úrkomusamt, bleyta og kuldi yfir í hlýtt og sólríkt og allt þar á milli. Svo getur það verið kaflaskipt. Meðaltalið lýsir ekki því sem raunverulega var í gangi. Meðaltalið, það má ljúga til um flest með því. Það er eins og að vera með fæturna í ísbaði og hausinn í ofni, og að meðaltali líður þér vel?“ spyr Einar. Niðurstaða þess að þýfga þá Harald og Einar um komandi sumar er einkum sú að óvíða sé veðrátta eins sveiflukennd og breytileg og á Íslandi.
Mest lesið Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Ted Turner er látinn Erlent Fleiri fréttir Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Sjá meira