Innlent

Umsóknarfrestur útrunninn: Þrír í framboði til rektors HÍ

Atli Ísleifsson skrifar
Einar Steingrímsson, prófessor við University of Strathclyde í Skotlandi, Jón Atli Benediktsson, prófessor og aðstoðarrektor Háskóla Íslands, og Guðrún Nordal, prófessor og forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, skiluðu inn umsóknum.
Einar Steingrímsson, prófessor við University of Strathclyde í Skotlandi, Jón Atli Benediktsson, prófessor og aðstoðarrektor Háskóla Íslands, og Guðrún Nordal, prófessor og forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, skiluðu inn umsóknum.
Þrjár umsóknir bárust um embætti rektors Háskóla Íslands en frestur til að sækja um embættið rann út í gær.

Einar Steingrímsson, prófessor við University of Strathclyde í Skotlandi, Guðrún Nordal, prófessor og forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, og Jón Atli Benediktsson, prófessor og aðstoðarrektor Háskóla Íslands, skiluðu inn umsóknum.

Í frétt Háskóla Íslands segir að allir umsækjendur uppfylli skilyrði um embættisgengi samkvæmt ákvörðun háskólaráðs, en ráðið hefur jafnframt skipað kjörstjórn vegna rektorskosninganna.

Kristín Ingólfsdóttir mun láta af embætti þann 1. júlí næstkomandi en hún hóf störf sem rektor árið 2005. Sat hún því tvö kjörtímabil.

Í frétt á heimasíðu HÍ segir að samkvæmt reglum skólans beri háskólaráði að kanna hvort umsækjendur uppfylli skilyrði um embættisgengi en embættisgengir eru þeir einir sem hafa prófessorshæfi, leiðtogahæfilega og skýra og metnaðarfulla framtíðarsýn fyrir háskólann, ríka samskiptahæfni og víðtæka reynslu af stjórnun og stefnumótun. „Á fundi háskólaráðs í dag var farið yfir umsóknirnar þrjár og teljast allir umsækjendur uppfylla skilyrði um embættisgengi til rektors.

Á fundinum í dag skipaði háskólaráð enn fremur kjörstjórn vegna kosninganna. Verkefni kjörstjórnar er að hafa fyrir hönd háskólaráðs umsjón með gerð kjörskrár, ákveða kjördag, annast framkvæmd kosningarinnar, úrskurða í kærumálum vegna hennar, sjá um utankjörfundaratkvæðagreiðslu og annað er að kosningunni lýtur. Skal rektorskjör fara fram eigi síðar en sex vikum eftir að umsóknarfrestur rennur út.

Í kjörstjórn sitja:

Björg Thorarensen, prófessor, formaður

Hjálmtýr Hafsteinsson, dósent

Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófessor

Trausti Fannar Valsson, lektor

Bergþór Bergsson, stúdent

Álfrún Perla Baldursdóttir, stúdent

Unnið er að uppsetningu upplýsingasíðna, bæði á vef Háskóla Íslands og á innri vef skólans, Uglu, fyrir kjósendur í rektorskosningunum og verða þær kynntar á næstu dögum.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×