Innlent

Fékk glerflösku í andlitið fyrir utan Prikið

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Úr miðbæ Reykjavíkur að næturlagi. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Úr miðbæ Reykjavíkur að næturlagi. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Kolbeinn Tumi
Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur 24 ára gömlum Reykvíkingi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás í desember 2013. Manninum er gefið að sök að hafa kastað glerflösku í andlitið á jafnaldra sínum fyrir utan skemmtistaðinn Prikið.

Sá sem fyrir flöskunni varð hlaut þriggja sentimetra langan skurð á vinstri augabrún og eins sentimetra langan skurð fyrir neðan vinstra auga sem sauma þurfti saman með sex sporum. Hann fer fram á rúmlega 850 þúsund krónur í bætur frá árásarmanninum.

Málið verður þingfest í héraði á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×