Fékk ekki VIP-meðferð og slasaði mann með glerflösku Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. janúar 2015 11:03 Maðurinn var ósáttur við að fá ekki að fara fram fyrir röðina, strunsaði í burtu, reyndi að fara yfir keðjur utan við skemmtistaðinn en datt um þær. Gekk hann nokkur skref til viðbótar áður en hann kastaði glerflösku í áttina að inngangi staðarins. Vísir/Anton
Hæstiréttur hefur staðfest átta mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm yfir 36 ára gömlum karlmanni fyrir að hafa kastað glerflösku í höfuð manns sem stóð í röð fyrir utan skemmtistaðinn Loftið í Austurstræti. Maðurinn hlaut brot á ennisbeini, hringlaga skurð á enni, glóðurauga á báðum augum auk þess sem hann fann fyrir svima og sjóntruflunum. Var hann frá vinnu í lengri tíma eftir atvikið. Hæstiréttur lækkaði miskabætur mannsins úr 1,5 milljón í eina milljóna króna. Atvikið gerðist aðfaranótt föstudagsins 4. maí 2013 þar sem dæmdi óskaði eftir því að fá að fara fram fyrir röðina á Loftinu ásamt unnustu sinni og vini. Dyraverðir neituðu og bentu þeim á að fara í röðina. Þótti manninum dyraverðirnir dónalegir og höfðu dyraverðirnir sömu sögu að segja um manninn. Maðurinn var ósáttur við að fá ekki að fara fram fyrir röðina, strunsaði í burtu, reyndi að fara yfir keðjur utan við skemmtistaðinn en datt um þær. Gekk hann nokkur skref til viðbótar áður en hann kastaði glerflösku í áttina að inngangi staðarins. Maðurinn hélt því fram að þegar hann missti jafnvægið hefði hann um leið losað sig við glerflöskuna. Hann hefði talið hana hafa farið í jörðina enda hefði hann heyrt brothljóð. Hann hefði ekki orðið var við að nokkur hefði slasast og það hefði ekki verið ætlunarverk hans. Tveir menn hefðu veist að honum í kjölfarið og hann forðað sér ásamt unnustu sinni.Fólk að skemmta sér í miðbæ Reykjavíkur að næturlagi.Vísir/Kolbeinn TumiFlöskunni kastað af afli Dyraverðir töldu að maðurinn hefði verið að reyna að kasta í áttina að dyraverðinum sem hefði gefið manninum afsvar. Dyravörðunum tókst að beygja sig en sáu svo hvernig blæddi úr andliti manns sem stóð með bakið upp við vegg í röðinni. Framburður dyravarðanna þótti greinargóður og skýr. Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur kemur fram að af áverkum að dæma verði ráðið að flöskunni hafi verið kastað af afli. Ákærða hafi átt að vera ljóst að háttsemi hans var stórhættuleg og líkleg til að valda einhverjum líkamstjóni sem raunin varð. Var maðurinn dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára en hann hafði ekki áður hlotið refsingu. Farið var fram á þrjár milljónir í miskabætur en mat héraðsdómur 1,5 milljón krónur hæfilegar bætur. Hæstiréttur staðfesti að öllu leyti dóm í héraði að því frátöldu að miskabætur voru lækkaðar í eina milljón. Í dómi Hæstaréttar var fundið að því að eftir að ákæruvaldið hefði fengið dómsgerðir málsins frá héraðsdómi hefðu liðið tæpir fimm mánuðir þar til málsgögnin voru afhent Hæstarétti.Dómurinn í heild sinni.
Mest lesið Árásarmaðurinn á blótinu með langan brotaferil á bakinu Innlent „Hvaðan kom þetta fyrirbæri eiginlega hér inn á þing?“ Innlent „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Erlent Loka sundlaugum fram yfir helgi vegna kuldans Innlent Eigi að „brenna barnaverndarkerfið til grunna og byrja aftur“ Innlent Jón Gunnarsson biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Litir víkja fyrir nútímanum víðast hvar Innlent „Við systkinin erum bara vinnandi fólk“ Innlent Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Erlent Málið verði flutt upp á nýtt með nýju vitni Innlent Fleiri fréttir Sungið, saumað og sprellað á öskudaginn „Alltaf hætta á stigmögnun með þá utanríkisstefnu sem Rússland rekur“ Gestafjöldi verður ekki takmarkaður við fimm þúsund Þurfi að útkljá hver er að misskilja hvern Gaut ellefu íslenskum fjárhundum sem er heimsmet „Við systkinin erum bara vinnandi fólk“ Litir víkja fyrir nútímanum víðast hvar Málið verði flutt upp á nýtt með nýju vitni Með Alzheimer en gæti beðið í fjögur ár Braut á ungri bróðurdóttur sinni sem bjó á heimilinu Nauðgari hélt því fram að Snapchat-skilaboð væru ekki frá honum Jón Gunnarsson biðst afsökunar á orðum sínum Borgin taki til sín fimmtung launahækkunar barnafólks Almannatryggingamálinu frestað en engar breytingar í farvatninu Ótrúlegt hve fáar virkjanir komist í gegnum rammaáætlun Tekur tímabundið við Framsóknarflokknum Hafnar því að strandað hafi á honum að bregðast við menguninni Rúta hafnaði utan vegar og valt Vísbendingar um að þúsund börn á Íslandi sæki ekki skóla Niðursveiflan á vinnumarkaði sé mjög djúp „Hvaðan kom þetta fyrirbæri eiginlega hér inn á þing?“ Landsvirkjun fagnar fleiri nýtingarkostum í rammaáætlun Refsað fyrir að loka á konu og keyra yfir fætur hennar Hræddur um að öfugur hvati leiði til fjölgunar öryrkja Ekki viss um að hægt sé að lappa upp á samband Evrópu og Bandaríkjanna Gengu tíu kílómetra til að geta óskað eftir aðstoð Maðurinn sem lýst var eftir fundinn Bein útsending: Umhverfið í hnattrænu samhengi Eigi að „brenna barnaverndarkerfið til grunna og byrja aftur“ Engin breyting þó veðmálakóngur sé einn eftir Sjá meira