„Stefna öryggi í tvísýnu í skjóli álveranna“ Stefán Árni Pálsson skrifar 5. janúar 2015 11:33 Aðalfundur Sjómannafélags Íslands krefst þess að erlendir auðhringar sem nýta íslenskar orkulindir virði rétt sjómanna. Fréttablaðið/Anton
Sjómannafélag Íslands ályktaði á aðalfundi sínum að öryggi sjómanna sé stefnt í tvísýnu. Í ályktuninni segir að árið 2014 máttu sjómenn sæta því að öryggi þeirra var ítrekað stefnt í tvísýnu. Seinagangur Landhelgisgæslunnar hafi enn eitt árið verið fréttaefni fjölmiðla. „Þann 5. desember síðastliðinn fékk stýrimaður á Örfirisey hjartaáfall þar sem togarinn var staddur 30 mílur útaf Ísafjarðardjúpi. Það tók þyrlu Gæslunnar þrjár klukkstundir að komast að togaranum en hún hafði verið yfir gosstöðvunum norður af Vatnajökli þegar neyðarkall barst. Viðbragðstími varð þrjár klukkustundir í stað klukkustundar. Allan þann tíma var stýrimaður meðvitundarlaus í bráðri lífshættu. Það var eingöngu fyrir snarræði og fumlaus viðbrögð félaganna um borð að lífi hans var bjargað.“ Það hafi tekið Gæsluna tólf tíma að manna varðskipið Þór þegar Akrafellið strandaði við Vattarnes í byrjun september. Það er mat Sjómannafélags Íslands að Landhelgisgæslunni sé haldið í fjársvelti og starfsfólki gert erfitt fyrir. „Enginn starfandi skipherra var á landinu þegar neyðarkall barst frá Akrafellinu og áhöfn kölluð úr fríi. Tólf tímum eftir strandið fyrir austan lagði Þór loks úr Reykjavíkurhöfn áleiðis austur meðan Akrafellið var dregið inn Eskifjörð. Fyrir nokkrum árum hafði Gæslan þrjár áhafnir til að manna tvö skip en er nú aðeins með eina og hálfa áhöfn til að manna eitt skip hverju sinni.“ Aðalfundur Sjómannafélags Íslands krefst þess að stjórnvöld geri dugmiklu starfsfólki Landhelgisgæslunnar kleift að standa við markmið um öryggi sjófarenda.Fjárskortur Hafró „Skip Hafrannsóknarstofnunar liggja í höfn vegna fjárskorts svo ekki er hægt að stunda eðlilegar hafrannsóknir á sama tíma og milljarðar renna í ríkissjóð í formi skatta frá sjávarútvegi; veiðileyfagjöld, sérstök veiðileyfagjöld og hvað allt sú görótta mixtúra heitir.“ Aðalfundur Sjómannafélags Íslands krefst þess að Hafró verði gert kleift að halda úti eðlilegum hafrannsóknum.Aðför Rio Tinto og Aloca að sjómönnum Í ályktuninni segir meðal annars að Rio Tinto Alcan í Straumsvík og Alcoa á Reyðarfirði hafa um nokkurra ára skeið grafið undan íslenskri sjómannastétt. „Útflutningur álveranna hefur verið í höndum hentifánaspekúlanta sem stefna öryggi á hafinu í tvísýnu með afdönkuðum ryðkláfum og sjómenn sem þekkja lítt eða ekkert til siglinga í N-Atlantshafi, svo sem dæmin sanna. Siðblindir spekúlantar brjóta á réttindum manna og stefna öryggi í tvísýnu í skjóli álveranna í Straumsvík og á Reyðarfirði. Það er óásættanlegt að alþjóðlegir auðhringar, sem hafa hringað um sig hér á landi og nýta auðlindir þjóðarinnar, grafi undan íslenskri sjómannastétt og stefni öryggi á hafinu í tvísýnu.“ Aðalfundur Sjómannafélags Íslands krefst þess að erlendir auðhringar sem nýta íslenskar orkulindir virði rétt sjómanna til jafns við aðra starfsmenn sem skapa verðmæti á grundvelli náttúruauðlinda þjóðarinnar. Þess er krafist að stjórnvöldi grípi inn í þá ósvinnu sem nú viðgengst. „Sjávarútvegi hefur verið haldið í óvissu allan þennan áratug og núverandi ríkisstjórn hefur haldið þeirri iðju áfram. Ekki hefur tekist að koma löggjöf um sjávarútveg í gegn um þingið. Sjómannasamningar hafa verið lausir eftir að LÍÚ í janúar 2011 setti fram ósvífnar kröfur um kjaraskerðingu. Sjómenn hafa þurft að verja hendur sínar gagnvart útgerðarmönnum og stjórnvöldum sem sviptu þá sjómannaafslætti,“ segir í ályktuninni. Þar kemur ennfremur fram að Sjómannafélag Íslands mótmælir endurteknum árásum á kjör sjómanna, jafnframt því sem þess er krafist að í ný lög um sjávarútveg verði allur sjávarafli seldur í frjálsum viðskiptum.
Mest lesið Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Erlent Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Innlent Fleiri fréttir Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Sjá meira