Innlent

Þrjú fíkniefnamál á Suðurnesjunum í nótt

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sýnatökur á lögreglustöð leiddu í ljós neyslu ökumannsins á kannabis og amfetamíni.
Sýnatökur á lögreglustöð leiddu í ljós neyslu ökumannsins á kannabis og amfetamíni.
Nóg var um að vera hjá lögreglunni á Suðurnesjum í nótt en hún handtók ökumann sem grunaður var um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Sýnatökur á lögreglustöð leiddu í ljós neyslu hans á kannabis og amfetamíni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjunum.

Áður höfðu lögreglumenn haft afskipti af öðrum ökumanni af sömu ástæðu. Mikil kannabislykt var í bifreið hans og reyndist viðkomandi hafa neytt kannabisefna.

Loks fannst amfetamín í buxnavasa einstaklings sem hafði hagað sér dólgslega á skemmtistað í umdæminu og var handtekinn af þeim sökum. Hann lét öllum illum látum í lögreglubifreiðinni á leiðinni á lögreglustöð og gat hann ekki lesið upplýsingablað fyrir handtekna þegar þangað var komið vegna þess ástands sem hann var í. Fíkniefnin fundust svo á honum við öryggisleit.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×