Ábati sagður margfaldur af styrkingu túlkasjóðsins Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 17. júní 2015 07:00 Táknmál var lögfest árið 2011 sem fyrsta mál þeirra sem það nota. VÍSIR/HARI
Valgerður Stefánsdóttir „Við höfum spurt ráðuneytið um hvort það berist viðbótafjármagn en okkur var tjáð að svo væri ekki,“ segir Valgerður Stefánsdóttir, forstöðumaður Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra, um fjármögnun túlkasjóðs. Túlkasjóður er uppurinn og skapar það umtalsverð vandamál fyrir fólk sem treystir á aðstoð túlka. „Við höfum fengið þau skilaboð að við fáum 23,6 milljónir í sjóðinn út árið og þessu er skipt upp í fjögur tímabil. En það er ljóst að þetta fjármagn dugir okkur ekki.“ Féð fyrir þennan fjórðung er búið og von er á næsta kvóta 1. júlí en Valgerður segir að ástandið hafi bitnað á mörgum. Hún telur upp fjölda viðburða á borð við útskriftir, ættarmót, starfsviðtöl og fleira þar sem fólki hefur verið neitað um túlkun. Þá geta heyrnarlausir ekki sinnt lögbundnum hlutverkum líkt og að mæta á húsfundi. „Ímyndaðu þér ef þú gætir ekki stundað samskipti á neinu sviði sem ekki tengist hinu opinbera. Það er alveg ljóst að þetta fjármagn er ekki nóg.“ Valgerður segir lykilinn felast í lagasetningu en á Íslandi er ekki lögbundin krafa að veita heyrnarlausum og heyrnarskertum túlkaþjónustu. „Hjá nágrannalöndum okkar er þessi þjónusta ótakmörkuð enda er hún bundin í lög,“ segir Valgerður. Ennfremur bendir hún á að ef Alþingi myndi staðfesta sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólk yrði það ígildi þess að lögfesta þau réttindi.Daði HreinssonDaði Hreinsson, framkvæmdastjóri Félags heyrnarlausra, segir ástandið með öllu óviðunandi. „Lögfræðingur okkar hefur skrifað menntamálaráðherra bréf og við höfum margítrekað að meira fjármagn þurfi í sjóðinn en það heyrist ekkert. Við hörmum það hvað það kemur lítið til okkar og hve mikið skilningsleysið er. Það er algert,“ segir Daði en hann segir stjórnvöld ekki hafa sýnt þessu mikinn áhuga síðan túlkasjóður tæmdist fyrst í fyrravetur. Daði segir Félag heyrnarlausra hafa gert úttekt á því hver ábati samfélagsins væri ef heyrnarlausum væri tryggð almennileg þátttaka samfélaginu til dæmis með hjálp túlkasjóðs. „Við fengum Tryggingastofnun til að reikna fyrir okkur og Deloitte staðfesti þær tölur að ef okkar fólk væri fullvinnufært en ekki á örorku væri ábatinn af því í gegn um skatttekjur og því um líkt um 112 milljónir á ári fyrir ríkið. Það sem okkur vantar í túlkasjóð er dropi í hafið á móti ábatanum,“ segir hann og ítrekar mikilvægi úrbóta fyrir heyrnarlausa. „Þetta snýst um grundvallarmannréttindi ákveðins hóps í samfélaginu og jafnan aðgang hans að vinnumarkaðnum frekar en að stuðla að óvirkni hans.“
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Segir upp eftir tvær vikur í starfi Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Fleiri fréttir Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Sjá meira