Óttast um líf sitt og fá neyðarhnapp Linda Blöndal skrifar 2. apríl 2015 19:30
Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu hefur undanfarið útvegað þeim neyðarhnappa sem taldir eru í mögulegri lífshættu vegna heimilisofbeldis. Úrræðið er nýtt hér á landi og notað ásamt öðru í átaki gegn heimilisofbeldi. Fleiri muni fá slíkt öryggistæki á næstunni, segir Alda Björk Jóhannesdóttir, aðstoðaryfirlögreglustjóri Höfuðborgarsvæðsins. Fleiri munu án efa fá neyðarhnappaLögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur tveimur konum og þolendum heimilisofbeldis svokallaða neyðarhnappa. Þremur konum á Suðurnesjum hafa verið afhentir slíkir hnappar, hinni fyrstu í fyrrasumar. Fréttatíminn fjallar um málið í dag. Teljast í lífshættuAlda Björk segir víst að fleiri muni fá neyðarhnappa en reynsla sé rétt að fást af úrræðinu. Sérútbúið hættumat er gert fyrir hvert tilfelli. „Við metum að mikil áhætta sé í þessum málum og öryggi viðkomandi sé ekki betur gætt heldur en með þessu úrræði. Við notum þetta ekki almennt. Við erum að tala um að viðkomandi geti verið í lífshættu", sagði Alda Björk í fréttum Stöðvar tvö í dag. Þolandinn er með hnappinn á sér allan sólarhringinn og hægt er að staðsetja hann með GPS hvar sem er. Hnappurinn er tengdur við Öryggismiðstöðina og Neyðarlínuna og berast boðin til fjarskiptamiðstöðvar lögreglunnar. Fyrst og fremt öryggistilfinningAlda Björk segist ekki vita til þess að tækið hafi beinlínis bjargað mannslífum. Það veiti konunum fyrst og fremst öryggistilfinningu. „Það er ekkert sérstaklega algent að það sé ýtt á hnappana þannig að viðkomandi noti hnappinn. Þetta veitir þolandanum meira öryggi til að vera þátttakandi í samfélaginu þegar hann er í þessari hættu", segir hún. Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu hóf átak gegn heimilisofbeldi í byrjun árs og hafa meira en hundrað mál verið tilkynnt síðan þá. Reykjavíkurborg og Barnaverndarnefnd vinna með lögreglu í átakinu og Mosfellsbær varð nýlega þátttakandi í því. Ítarlegri skráning á heimilisofbeldi er hluti af þeirri vinnu. „Alveg örugglega", segir Alda Björk aðspurð hvort það muni aukast að þolendur fái slíkt öryggistæki. Konur óttast um líf sittMikil fylgni er á milli manndrápa og heimilisofbeldis. Gera má ráð fyrir að lágmark fimm konur óttist um líf sitt hér á landi vegna ofbeldis. Í úttekt Fréttatímans kemur fram að sakfellt hafi verið í sautján heimilisofbeldismálum frá árinu 2011 hjá Héraðsdómi Reykjaness, þar af átta í fyrra. Átak lögreglunnar hófst fyrr á Suðurnesjum eða árið 2013.
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira