Nýsköpunarkeppni grunnskólanna fór fram fyrir helgi Jóhann Óli Eiðsson skrifar 1. júní 2015 17:46 Verðlaunahafar ásamt Ara Kristni Jónssyni, rektor HR. mynd/nkg
Nýsköpunarkeppni grunnskólanna fór fram dagana 28.-31. maí. Tæplega tvöþúsund hugmyndir frá ríflega þrjúþúsund nemendum voru sendar inn í keppnina en að endingu voru 54 nemendur úr fimmta, sjötta og sjöunda bekk sem kepptust við að koma hugmyndum sínum á framfæri. NKG var fyrst haldin árið 1992. Í flokki nemenda í sjöunda bekk var það Auður Aþena Einarsdóttir úr Seljaskóla sem bar sigur úr býtum með smáforritið How do you feel today? Hugmyndin er smáforrit fyrir snjallsíma þar sem notandinn skráir líðan sína daglega. Fólk getur þar skráð líðan sína svo það, aðstandendur og læknar geti fylgst með henni. Forritið er sérstaklega hugsað fyrir þá sem glíma við ýmsa kvilla en gæti gagnast hverjum sem er. Í flokki sjöttubekkinga voru það Bragi Hrólfsson og Davíð Sigurvinsson sem sigruðu með hugmynd sína „Endurvinna dross.“ Líkt og Auður Aþena eru þeir úr Seljaskóla. Hugmyndin snýst um að endurvinna álgjall sem er efni sem fellur til við álvinnslu. Þeir gerðu tilraunir með að blanda því við steypu til að nýta það til byggingar. Nú er efninu fargað. Hjá fimmtubekkingum var það Hermann Þór Þórarinsson úr Varmárskóla sem var hlutskarpastur en hann kom með hugmyndina að klukkunni Tímon. Hermann á litla systur sem vaknar oft fyrir allar aldir og tekur síðan upp á því að vekja alla á heimilinu en stúlkan er ólæs á tíma sökum ungs aldurs. Tímon er klukka sem sýnir tíma sem liti. Ef klukkan er græn þegar stelpan vaknar er í lagi að vekja aðra en sé hún rauð er réttast að bíða með það. Hofsstaðaskóli í Garðabæ hlaut svo farandbikar NGK í flokki stærri skóla og Grunnskóli Hornafjarðar sama bikar í flokki smærri skóla. Ragnar K. Gestsson, kennari í barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri, hlaut titilinn Nýsköpunarkennari grunnskólanna 2015. Að auki hlaut Birkir Snær Ingólfsson viðurkenningu JCI fyrir framúrskarandi framsöguræðu og Lilja Ósk Atladóttir og Jónar Þórir Þrastarson fengu Guðrúnarbikar og Tæknibikar Paul en þau verðlaun eru veitt þátttakendum sem sýna mikla vinnusemi og áræðni á meðan NKG stendur. Allir þátttakendur hlutu síðan skjöld frá NKG með nafi sínu á til marks um þátttöku sína. Myndir frá verðlaunaafhendingunni má sjá hér fyrir neðan.
Mest lesið Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Innlent Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Innlent „Það átti að taka mig í karphúsið“ Innlent Selenskí undir miklum þrýstingi Innlent „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Innlent Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Erlent Eldur í sendibíl á Miklubraut Innlent Fleiri fréttir Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Sjá meira