120 nýjar íbúðir á gamla Blómavalsreitnum Atli Ísleifsson skrifar 1. júní 2015 20:36 Myndirnar sem fylgja fréttinni eru unnar af Atelier arkitektum sem unnu deiliskipulagið. Þær sýna ekki lokaútlit bygginga. Mynd/Reykjavíkurborg
Nýtt deiliskipulag fyrir Sigtún í Reykjavík gerir ráð fyrir að 120 íbúðir af ýmsum stærðum og gerðum rísi þar í sex byggingum. Grand Hótel verður sömuleiðis stækkað og verður leitast við að fella byggðina vel að núverandi byggð á Teigum. Borgarráð hefur samþykkt að auglýsa nýtt deiliskipulag fyrir Sigtún 38 og 40. Um er ræða lóðina sem Grand Hótel stendur á og gömlu Blómavalslóðina.Í frétt á vef Reykjavíkurborgar segir að samkvæmt deiliskipulaginu verði heimilt að byggja níu hæða byggingu við hótelið en til standi að fjölga herbergjum og stækka ráðstefnusali þess á lóðinni númer 38. Á Blómavalslóðinni númer 40 verður heimilt að byggja allt að 120 íbúðir. „Samkvæmt deiliskipulaginu verður unnið með svæðið sem eina skipulagsheild og haft að leiðarljósi að tvinna það saman og aðlaga vel að nærliggjandi byggð. Nýjar byggingar á lóðinni við Sigtún 40 verða sex og verða þær af mismunandi stærðum og hæðum umhverfis myndarlegan og skjólgott garðsvæði. Á þann hátt fléttast byggðin inn í byggðamynstur nærliggjandi byggðar. Byggingar við Sigtún verða lágreistar þannig að þær falli vel að götumyndinni og núverandi byggð handan götunnar. Byggingar hækka síðan á móti Engjateig til suðurs og hæsta hluta núverandi bygginga við Sigtún 38. Áfangaskipting uppbyggingar verður þannig að hefja skal uppbyggingu íbúðabyggðar á lóðinni númer 40 en síðar verði ráðist í stækkun hótelsins á lóðinni númer 38. Heimilt er að gera nauðsynlegar framkvæmdir á lóðinni númer 38 til að auðvelda uppbyggingu íbúðabyggðarinnar. Á reitnum verða byggðar 120 íbúðir í ýmsum stærðum. Klæðningar bygginga verða í jarðlitum og notað verður kvars eða steinsalli í anda húsanna í Teigahverfi. Æskilegt er að slétt þök verði þakin grasi en notast verður við visthæfar lausnir í uppbyggingunni samkvæmt Aðalskipulagi Reykjavíkurborgar 2010 – 2030,“ segir í fréttinni. Hægt að skila inn athugasemdum við deiliskipulagið til 10. júlí næstkomandi.Hér er hægt að skoða uppdrætti af deilisskipulaginu fyrir Sigtún 38 og 40Mynd/reykjavíkurborgMynd/Rekjavíkurborg
Mest lesið Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Sjá meira