Vissi ekki hvernig viðskipti voru útfærð Viktoría Hermannsdóttir skrifar 27. júní 2015 07:00 Hreiðari Má var ekki gerð frekari refsing umfram dóminn sem hann afplánar nú vegna Al Thani- málsins. Fréttablaðið/Pjetur
Dómur í svokölluðu markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings var kveðinn upp í gær. Hreiðar Már Sigurðsson, Sigurður Einarsson, Ingólfur Helgason, Einar Pálmi Sigmundsson, Birnir Sær Björnsson, Pétur Kristinn Guðmundsson og Bjarki H. Diego voru allir dæmdir sekir. Tveimur liðum ákæru á hendur Magnúsi Guðmundssyni var vísað frá og hann var sýknaður af hinum. Björk Þórarinsdóttir var líka sýknuð í málinu. Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, var ekki gerð frekari refsing umfram dóminn sem hann hlaut í Al Thani-málinu en þar var hann dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi. Samanlögð refsing Sigurðar Einarssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings, fyrir aðild að markaðsmisnotkunarmálinu og Al Thani-málinu er fangelsi í fimm ár, fjögur ár fyrir Al Thani-viðskiptin og svo bættist eitt ár við vegna þessa máls. Ingólfur, fyrrverandi forstjóri Kaupþings á Íslandi, var dæmdur í fangelsi í fjögur og hálft ár fyrir markaðsmisnotkunarmálið en hann var ekki á meðal ákærðu í Al Thani-málinu. Bjarki, sem sat í lánanefnd Kaupþings, var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir umboðssvik. Einar Pálmi, sem var forstöðumaður eigin viðskipta Kaupþings, hlaut tveggja ára skilorðsbundinn dóm. Pétur Kristinn og Birnir Sær, starfsmenn eigin viðskipta, hlutu 18 mánaða skilorðsbundinn dóm. Yfirlýsing Sigurðar Einarssonar:Sigurður Einarsson í dómssal.UNDARLEGUR DÓMURHéraðsdómur Reykjavíkur sýknaði mig í dag af öllum ákæruatriðum í svokölluðu markaðsmisnotkunarmáli nema tveimur. Fyrra tilvikið varðar starfsemi deildar eigin viðskipta Kaupþings á Íslandi. Dómararnir segja að þar hafi átt sér stað markaðsmisnotkun með því að setja fram á markaði kauptilboð í hlutabréf og þar með verið ranglega gefin til kynna eftirspurn eftir hlutabréfunum. Ég sagði fyrir dómi að ég hafi vitað af starfsemi deildarinnar, sem m.a. hafði þann tilgang að tryggja hluthöfum bankans og öðrum að þeir gætu hvenær sem er átt viðskipti með hlutabréf í bankanum á markaðsverði. Ég hafi hins vegar ekkert vitað um hvernig viðskiptin voru útfærð og hafi aldrei verið í samskiptum við þá starfsmenn bankans sem störfuðu í deildinni. Í forsendum dómsins er sagt að með tilliti til stöðu minnar í bankanum sé ekki óvarlegt að telja sannað, þrátt fyrir neitun mína, að markaðsmisnotkunin hafi verið að mínu undirlagi. Síðan er því bætt við að ótrúverðugt sé að æðstu stjórnendum bankans hafi ekki verið kunnugt um hvernig deild eigin viðskipta vann! Ég var formaður stjórnar bankans með starfsaðstöðu í London frá árinu 2003. Bankinn var með starfsemi í 13 löndum og þar störfuðu nokkur þúsund manns. Ég reyndi að hafa sýn yfir starfsemi bankans en það ætti að segja sig sjálft að ég gat ekki fylgst með því sem gerðist í daglegri starfsemi bankans í einstökum löndum. Ég hélt að sönnunarbyrði um sekt hvíldi á ákæruvaldinu. Mér er fyrirmunað að skilja þessa ályktun dómaranna enda er hún röng. Seinna tilvikið varðar lán sem veitt var 19. september 2008 sem talið var fela í sér umboðssvik. Komist var að niðurstöðu um að með lánveitingunni hafi fjármunum Kaupþings verið stefnt í mikla hættu. Í ákærunni kemur fram að lánsbeiðni hafði verið afgreidd í lánanefnd bankans (lánanefnd samstæðu) og þaðan verið vísað til lánanefndar stjórnar þar sem ég sat ásamt þremur öðrum mönnum. Við samþykktum lánveitinguna á fundi 24. september 2008. Vegna þessa samþykkis erum við Hreiðar Már sakfelldir fyrir umboðssvik. Í ákærunni kemur fram að umrætt lán, sem veitt var 19. september 2008, var greitt upp að fullu þremur dögum síðar, þ.e. þann 22. september 2008. Þess vegna var útilokað að ákvörðun okkar sem tekin var eftir að lánið hafði að fullu verið endurgreitt hafi stofnað fjármunum Kaupþings í verulega hættu. Niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur í þessu máli veldur mér miklum vonbrigðum. Ég trúi því að allir þeir sem ákærðir voru í málinu hafi unnið með heill bankans að leiðarljósi og talið sig fylgja þeim lögum og reglum sem giltu í landinu.
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Segir upp eftir tvær vikur í starfi Innlent Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Erlent Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Innlent Fleiri fréttir „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Sjá meira